Mér líkar illa við þessar næturvaktir. Maður eyðir öllum deginum sofandi og svo fer líkamsklukkan og allt heila klabbið í bölvað rugl.. ég og minn búkur erum reyndar óvenju viðkvæm með þennan svefntíma, ég þarf bara að fá minn samliggjandi átta tíma lúr og stundum má hann meira að segja vera lengri. En þegar ég er búin að venja mig á að vaka á nóttunni og sofa á daginn tekur ennþá lengri tíma að snúa því við aftur. Ég kvíði semsagt fyrir því að fara aftur á morgun og kvöldvaktir.. þó það sé miklu metra fyrirkomulag. Annars er ég farin að sakna gamalafólksins.. maður er ekki í miklum samskiptum við þau á nóttunni.
Ma&pa eru að fara í ferðalag á morgun með strákana og ég verð skilin eftir heima þar sem maður er orðin hálf fullorðin ung kona og þarf að vinna. Ekki það að mér leiðist það að vera ein heima og minn eigin herra eða frú eða hvað.. þá leiðist mér það að skoða alltaf bara myndir frá ferðalögum fjölskyldunnar og vera aldrei með. Með öllu móti óþolandi og hunleiðilegt. Svona hefur þetta verið síðustu tvö sumur og svona verður þetta líka í sumar. Vonandi kemst ég samt eitthvað í útilegu.. það er ekkert sem ég elska meira en að vera í útilegu, nema kannski það að vera í berjamó í viku með ömmu og afa í sumarbústað lengst inni í Skíðadal. Það er eitthvað sem má heita yndislegt. En ég missi af því í ár líka ef þau fara, því ég verð komin í hitan og sólina í Suður-Frakklandi =) ..en mig langar í útilegu í sumar. Ég neita jafnvel að fara frá Íslandi án þess að komast í eina útilegu. Einhver til í að koma memm?


<< Home