Krydd dagsins:
Sverrir Stormsker varð á vegi mínum í kvöld.. eða þá maður með hatt, ég er ekki viss.
Svo sá ég líka Hitler niðrí miðbæ.. eða kannski bara dökkhærðan mann með yfirvaraskegg.. ég veit það ekki alveg.
En ég hitti Unu það veit ég.. ég var ekki alveg viss hvort þetta væri bara krúttleg ljóshærð stelpa með gleraugu en henni tókst að sannfæra mig þegar hún fór að tala um fjögurra bita samlokuna og svo síðar segja mér frá draumförum sínum, en í þeim draumi átti ég að hafa setið ásamt henni og Valdísi þar sem við vorum að horfa á lítil vélmenni dansandi um allt gólfið heima hjá Unu. Una og hennar draumfarir geta verið ansi merkilegar. En þegar hún fór svo að segja mér sögu af fyrirbyggjandi aðgerðum vegna vindkviða þá varð ég alveg viss um að þetta væri hún Una, ó Una.
Ég sá mann niðrí bæ með rassinn útúr buxunum, þ.e.a.s. upp fyrir buxurnar ..krúttleiki mannsins var ekki mikill.
Óskar sýndi mér listir sínar í dag. Eftir þessa sjón er ég viss um að hann mun eiga glæstan feril sem töframaður, annað hvort verður Skari Skrípó að fara að vara sig eða þeir taki sig saman og haldi double skara sýningar. Maðurinn gleypti ópal og kúgaði því aftur uppúr sér.. viðbjóður. En hann var að koma úr fimm daga ferðalagi, þar sem fjöll og holur voru á dagskrá allan daginn.. sem útskýrir þessa skyndilegu kunnáttu kauða.
Þegar ég var í kvöld að keyra um bæinn sá ég mikið af börnum. Börnum með sítt svart litað hár og rót niður að eyrum, í svörtum klæðnaði með gaddaólar um hálsinn. Hvert er ungviðið að fara nú til dags, hvar eru foreldrar þeirra? Þarf að gefa þessum foreldrum gleraugu? Meiriháttar slæm þróun í þessum málum hér á Akureyrensis.
Í vinnunni í kvöld tók ég gott spjall við konuna á elliheimilinu sem spurði um daginn hvort ég væri vistmaður.. hún var að segja mér frá einhverri þrusu bók sem hún var að lesa eftir Laxness. Ég varð forvitin og spurði hvað bókin héti. Hún mundi það nú ekki en sagði að sér finndist mikið til hennar koma og að hún væri Laxnesi hjartanlega sammála með íslenskuna og fleira í þeim dúr. Seinna um kvöldið var ég að hjálpa henni við að hátta og bað hana að sýna mér bókina. Ég veit ekki hvort Laxness hefur verið dani en höfundur bókarinnar var allavega Larssen. Laxnes - Larssen.. þetta er öruggulega mjög líkt þegar maður sér ekki munin á tvítugri starfsstúlku og níræðri konu. Ellllskan...
Ást er að deila einu tyggjói.
Sverrir Stormsker, Hitler, dansandi vélmenni, rass, töfrabrögð, gaddaólar, Halldór Larssen og hálft tyggjó. Í kvöld mun ég sofna með minningar dagsins vafðar utan um mig eins og hlýtt og græðandi teppi!
Góða nótt.


<< Home