Af einhverjum ástæðum hefur meginþorri gamals fólks furðulegan áhuga á sápuóperum. Sumir mæta of seint í morgunmat vegna þess að þeir mega ekki missa af Glæstum vonum, aðrir vilja ekki vakna á daginn nema bara rétt til að horfa á leiðarljós. Alveg þykir mér þetta sorglegt með eindæmum. Ég vona að ég muni hafa áhuga á einhverju ögn innihaldsríkara en þessum löður.. jahh annars ætla ég rétt að vona eins og hún Inga Vala starfssystir mín, að það verði einhverjar skemmtilegar sápuóperur í okkar elli.


<< Home