Sjitt lítið af hverju:
Í dag tók ég þá ákvörðun að flýta flutningum mínum að heiman um heila fimm daga. Ég mun leggja land undir fót eftir akkúrat mánuð í dag, dvelja fimm daga í landinu ljúfa og halda svo áfram til Frakklands. Spenningur, tilhlökkun, kvíði, bros, og blendnar tilfinningar.. mér líður einhvernveginn þannig. Annars get ég ekki beðið eftir unaðs 5 daga dvöl í Danmörku, ó ó ó.. það verður farið í Örstedsparken, andað að sér sælu og hamingju, Bakken er einn af mínum áfangastöðum.. jafnvel pik nik á Bakken. Birgðir af kínaskóm fyrir veturinn jájá.. allt sem tilheyrir.. jafnvel Moose og jafnvel harboe. Jafnvel heimsókn í gömlu vinnuna með vínabrauð í annari og saft í hinni. Gud hvor dejligt det biver! Ég mun klárlega kaupa mér Hendes Verden á prump á priki. Jeremías og svo fæ ég gistingu á Kvintus Allé.. fullkomið? Ég held það.
Var í vinnunni í dag.. elska þegar gamla fólkið borar í nefið af meiri innlifun en Elfa.
Kíkti til Evu frænku og Dabba kúl í nýju íbúðina þeirra. Þau eru búin að koma sér svona ótrúlega vel fyrir.. allt í stíl, fansí og flott en um leið heimilislegt, notalegt og fallegt. Enda ekki við öðru að búast af þessu fólki. Eva sýkti mig af handavinnubakteríunni og ég er búin að ákveða að eyða frídeginum á morgun, með henni í handavinnu. Hljómar vel fyrir bandóða fingur sem hafa lítið fengið að gera nema ódauðlegan og illa elskaðan krosssaum síðustu vikurnar.
Að taka bensín er góð afþreying. Þegar maður er jafn ofhlaðin tregðu og ég get verið. Hver hefur svosem ekki reynt það að fara vitlausu megin við dæluna.. jújú. En orkustöðin var mjög illa upplögð þetta kvöldið. Yfirleitt er henni illa við peningaseðla og gubbar þeim útúr sér jafnóðum og maður reynir að troða þeim inn í þennan svokallaða seðlasjálfsala. Núna neitaði hún alfarið að taka við honum.. lét eins og hún sæi hann ekki og andaði köldu, eins og hún væri að segja að hann væri andfúll. Ég móðgaðist hrottalega þar sem að hvergi stendur að maður þurfi að stauja seðlana, úða á þá ilmvatni og bursta á þeim blindraletrið áður en maður mætir þarna niðreftir. Ég hlammaði mér inn í bílinn í miklu fáti og gerði tvær tilraunir til að keyra af stað áður en ég fattaði að það væri nauðsynlegt að starta bílnum. Já það mætti halda að maður væri vistmaður! Þegar ég komst svo á viðreynsluhæfa orkustöð og allt gekk upp, sullaði ég á mig bensíni. Til hamingju, þetta tókst svona vel.
Jarðaber eru hundvond ef maður ætlar að gæða sér á þeim með nýburstaðar tennur.
Daginn endaði ég á því að horfa á golf með Óskari. Núna veit ég hvað fugl er í annarri merkingu en fiðraður búkur með gogg og vængi. Mér líður mjög merkilega.. á morgun ætla ég að ganga um með hanska í rassvasanum. Jafnvel rauðan gúmíhanska.


<< Home