mánudagur, júlí 18, 2005

Í dag:

Borðaði ég humar í morgunmat

Fjárfesti ég í myndavél - hallelúja!

Feisaði ég vindinn og sýndi honum að hjá mér er sumar þó hann blási og mási eins og hundur á sterum.. fór út á peysunni í pilsi og fannst ég svöl.

Komst ég að því að það er hægt að kaupa hamingju, ég keypti hana í BT.. og hér með mun min elskede Napoleon Dynamite standa mér við hlið ójá!

Komst ég að því að ég er að passa upp á mömmu fyrrum fóstrunnar minnar frá því á leikskóla.. svona er víst hringrás lífsins!

Vona ég að Dimitri finni lækningu við Alzheimer.. mikið hrikalega er það ömurlegur sjúkdómur.

Bíð ég eftir miðvikudeginum.. frídeginum mikla! Annars styttist þetta og styttist.