Seint í gærkveldi fékk ég loksins töskurnar mínar. Eftir að hafa lesið yfir gaurnum sem keyrði þær út og gellunni sem vinnur hjá SAS baggage service. Ég var alveg brjál! Þau sögðu mér að það yrði komið með þær á milli sex og átta þannig að ég var heima á þeim tíma en ekki allan daginn. Nei gaurinn kom klukkan korter í sex! Ertuekkjaðgrínastgaur!! Og í þokkabót þóttist hann ekki geta komið með þær aftur, hann væri búinn að koma einu sinni. GAUR! Sjittsen hvað ég var pirruð. En ok, svo komu ræflarnir um tíu leytið og hvað þá. Jú, tvö göt á töskunni! Jæææja.. hvað segirðu. Aldrei hef ég lent í annarri eins þjónustu, guð minn góður.
En ég er í Köben, það er unaður.. Á fimmtudaginn röltum við Þórný í bæinn og settumst inn á Wesselskro, krá við hliðina á Moose sem er ekki alveg jafn sveitt. Þar hittum við dani sem gáfu sig á tal við okkur og fóru að lýsa áhuga sínum á Íslandi, tjáðu sig um það að þau væru að fara á Airwaves og þeim hlakkaði til. Svo buðu þau okkur í partí, vei.. sem er í kvöld. En við ætlum örugglega fyrst á Bakken.. jafnvel fer í í tívolí kjólnum mínum.
Addi, Jón Árni, Ívar og Auður komu í gær og við buðum þeim í mat.. mjög kósý, röltum í bæinn og settumst inn á Studenterhuset, þar var live band og mikið gaman. Moose var lendingarstaðurinn og þar hittum við Guðnýju og Bigga sem voru mjög kát. Kæti kæti.
Ég varð samt fyrir vonbrigðum í dag. Ég fór og keypti mér pítsu á Hugo's og Hugo sjálfur var ekki heima :( ..bakarinn í fyrramálið.


<< Home