Hamstur lagsins í lag.. eh 9,5?
Mm mm.. eitt stykki miðvikudagur að renna úr greipum mér. Svosum í lagi því ég er búin að nýta hann vel. Gymma, læra, læra, læra.. borða aðeins.. tosa kjólinn niður fyrir rassinn á mér, læra, jú já pissa og pissa aftur og aftur og aftur, þreifa á upphandleggsvöðvunum mínum.. svo mössuð og mjó eftir ræktina í morgun höhh! Drekka magninu meira af kaffi (säger man det?) ..þó aðalega læra og læra meira og ég get svo svarið það ef ég er svo ekki bara að nýta hann í að blogga, láta vita af mér, koma frá mér mínum faglega hamstri á veraldarvefinn. Mikið er það gott. Með blöndu af grænu og svörtu tei, sem kitlar tunguna með gómsætu bragði af rauðum berjum, rjóma og karamellu, sit ég hér og segji frá sjálfri mér. Egósentrískt vissulega, en það er þessi jákvæða styrking sem maður fær útúr því. Að fólk gleypi í sig það sem stendur hér og kasti á mig kveðju til baka, hvort sem er í kommentum eða töluðum orðum.. og það er hverri manneskju eðlilegt að sækjast eftir slíkri styrkingu. Ég er eðlileg vei! Eftir míns eigins (tippi(kvót í Stellu í orlofi fyrir þig sem ekki fattaðir)) skilgreiningu. Nú er ég klárlega komin villur vegar, út fyrir efnið. En teið er samt himneskt hvernig sem á það er litið.
Helgin var líka í himinhæðum. Fyrir utan allt það hressa og ofurkreis skemmtilega sem við gerðum ég og Linda.. hún kom í heimsókn frá fimmtudegi til mánudags.. þá var það nálægðin sem var best. Íslensk nálægð.. hang mmh yndi og unaður. Redecoration fyrir herbergið. Ekki enn búin að taka mynd af myndinni.. hún kemur mamma ;) Nennekki núna, myndavélin er batteríslaus líka. Læt frekar fylgja nokkrar myndir frá helginni..
Föstudagurinn var tekinn taki af sterkri samviskunni. Við lærðum allan daginn og lærðum mikið. Orð dagsins var tvímælalaust företeelser.
Á laugardeginum fórum við í bæinn með Karin og Björn, fórum á Bara Vara og bara vorum .. partur af lífinu. Tónar í tónlistinni, litir í flórunni. Nú ER ég BARA dramatísk.. men jag gjjjillar det. Nema hvað að þegar við ætluðum heim að halda.. fer bíllinn ekki í gang. Hann rembist og rembist en prumpar svo bara og hreinlega líður útaf af vindgangnum. Rafmagnslaus eins og loftið á lélegu deiti. Svo við máttum ýta og ýta en ekkert gekk. Lukkan færði okkur tvö hjón sem voru með starkappla í bílnum hjá sér og dass af þessari snällhet sem ég talaði um hérna um daginn. Þau komu okkur í gang og við þökkuðum fyrir þúsundsinnum.
Þetta er Karin. En ekki bara Karin heldur líka Björn, loðinn Björn með mikið hár. Mússímú..
Ef ekki hefði verið fyrir Lindu skaufa án skaufa, hefði ég eitt helginni eins og bitur bifur inní stofu, með skeifu á andlitinu, undir teppi í sófanum, einmanna og eirðarlaus. Miss mega sega magnificent.. takk fyrir helgina. Nú hlakka ég bara til að heilsa Skövde á ný. Í mars í mars.. :)
Nú er miðvikudagurinn minn að þrotum kominn og ég líka. Mér þykir ekki allskostar ólíklegt heldur að brátt muni ég liggja undir dúnamjúkri sæng í eplarúminu mínu, umlandi og mumlandi, slefandi í sefandi svefni, hrjótandi og jafnvel gjótandi í draumi.. eða jafnvel kyssandi þar strákstúf í laumi! Obbobobb.. hvað sagði Freud?


<< Home