miðvikudagur, september 14, 2005

5 tímar í það að að opni augun og líti nýjan dag. Pökkun er hér um bil yfirstaðin.. þótt ótrúlegt megi virðast. Mér væri vel trúandi til að taka allnighter á þetta en nei, ég ætla að vera skynsöm og fá minnst 4 tíma svefn (hversu skynsöm?). Planið er að vakna klukkan sjö. Til þess að það muni takast hef ég gert þrjár ráðstafanir. Fyrir það fyrsta, síminn (veit vel að hann mun ekki duga).. í öðru lagi, gullna gerpið (eldgömul vekjaraklukka sem tryllist og dansar af hamagangi þegar hún hringir.. hávaðinn er slíkur og þvílíkur að móðir mín vaknar sennilega við hana þar sem hún liggur á sínu græna á Íslandi.. óþolandi alveg hreint en þarfaþing á mínu heimili.. (hversu langur svigi!)) og svo í þriðja og síðasta lagi er ég búin að semja við grannan um að hringja í mig þegar hann heldur til sinna starfa sem er klukkan sjö. Ég ætti alveg örugglega að vakna. Málið er að ég vil vera komin út fyrir þessar dyr sem ég horfi á einmitt núna, klukkan átta og ekki mínútu síðar! Ég komst að því í dag að það væri sennilega best að ég tæki strætó útá flugvöll.. úps! Franskan strætó.. þannig að það er túrista kontorið í fyrramálið og svo gef ég mér góða 4 tíma til að vera komin í tæka tíð. Þannig að þetta ætti að reddast. Hér er öryggið haft í öndvegi þar sem að hvorki Rússland né ég erum andlega tilbúin til að bíta í það súra að ég myndi missa af einu af þessum þremur flugum sem bíða mín ef til þess kæmi. Ó nei takk. En þar var það.. ég ætla að líta yfir dótið aftur, fá mér epli og mjólk til að róa taugarnar og fara að sofa í hausinn á mér.