sunnudagur, september 11, 2005

Frakkar eru kostuglegir

Í gær ákvað ég að dissa heklunálina og elda með grannanum Christophe.. huggulegur matur sem við matreiddum.. og vel til verka vandað.. enda ekki við öðru að búast af nýbakaðri húsfreyju og vísindamanni. Hins vegar vorum við búin að göndla saman tveim litlum borðum og tvennu einhverju sem tæplega er hægt að kalla stóla en þeir voru engu að síður kallaðir það þetta kvöld. Samræðurnar voru búnar að vera líflegar og við ræddum allt milli himins og jarðar.. nema hvað að við vorum rétt búin að leggja á borð þegar hann stundi upp úr miðjum samræðum æstur eins og hann hafi gert vísindalega uppgötvun sem skipti sköpum fyrir mannkynið: ,,AND I HAVE CONDOMS TO!" Ég vissi ekki hvert ég ætlaði.. þetta var ekki beint það sem ég bjóst við að heyra frá þessum manni á þessari stundu.. engan veginn í samhengi við neitt og eins óviðeigandi og hægt er.. svo ég leit upp græn í framan og spurði ..did you just say that you have condoms? þetta sagði ég mjög skýrt og greinilega.. enda fór drengurinn í heljarstökk og dó úr hlátri og stundi svo upp no no no candles.. ennþá óþægilega líkt condoms í framburði en ég skildi hann af því að hann hélt á kerti og sveiflaði því þar sem hann stóð þarna við það að pissa á sig úr hlátri og ég átti erfitt með að halda í mér líka.. hló svo að þessu allt kvöldið.. elska svona atvik!