þriðjudagur, september 27, 2005

Undanfarið hef ég hvílt botn minn mikið í flugvélum og í leiðinni hef ég hvílt sjálfa mig. Ég hef sem sé flatt út rass minn með flugvélasetu (hljómar eins og klósettseta og að ég hafi notað þessa setu sem kökukefli við útflatningu) og eytt tíma mínum sofandi í flugvélum.. ekki tveimur og ekki þremur flugvélum, heldur níu! Já ég varð að prufa sem flest flugfélög.. synd og skömm að flugfélagagagnrýnisamtökin hafi ekki vitað af þessu ferðalagi mínu. Maður hefði kannski getað þénað einhvern eyri á því að koma með samantekt og samanburð. Jafnvel setja eitthvað aðeins útá kjúklingastöppu gordon blueið sem ég fékk í raspi í einhverri vélinni og grjónastöppuna sem var verri en mín eigin grjónastappa hérna í den.

Jæja.. heyrðu, þarna morguninn sem ég þrískipulagði hvenær ég ætlaði að vakna og við hvað.. já ég svaf fyrstu tvo möguleikana af mér og vaknaði við það þegar Christophe hringdi í fjórða skiptið! Góð Lilý.. (kemur sennilega engum á óvart!). Mér tókst að koma mér útá flugvöllinn í Nice, með strætó. Nýja ferðataskan mín,sem ég keypti útaf því að sú gamla var virkilega illa farin eftir ferðina hingað út.. öll í götum og veseni, (ennþá bitur) var ekki beint hoppandi glöð með vagninn, sem var svo þröngur að ég gat varla sjálf gengið um ganginn og hvað þá með 20 kílóa tösku.. ég held að Frakkar þurfi eitthvað aðeins að endurskoða stærðir almennt.. ég hélt fyrst að það væri bara fatnaður og skótau sem væru í litlum númerum en nei.. það hefur greinilega einhver ákveðið að gera allt sem í hans veldi stæði til að útrýma jússutrukkum á við sjálfa mig. Ekki sátt með þetta. Spilar enginn bingó hér?! En útá flugvöll komst ég og við báðar (ég og taskan) og það meira að segja í heilu lagi.. það virðist stundum vera eitthvað vandamál með töskuna (bitur).


Ekki nóg með það heldur kom ég mér líka til Kaupmannahafnar.. eftir afar áhugavert piknik á flugvellinum. Þeim fannst það erfitt að horfa ekki á manneskjuna með bingóvöðvann sem sat og át melónu með borðhníf við hliðina á þeim Norðmönnunum.. mér hefur aldrei fundist vera jafn mikill safi í melónu og einmitt þarna þar sem ég sat með blauta vömbina og melly í lúkunum. Í Kaupmannahöfn hafði ég það náðugt.. bæði á náðhúsinu og annarstaðar! Grín.. sorry. Ég hitti Huldu og gisti hjá henni.. hún er alltaf jafn yndisleg. Borðaði með Birki og Oddi á RizRaz, þar sáum við hund sitja til borðs við hliðina á okkur.. skemmtilegir þessir Danir. Ég hitti Helenu það var unaður og við förum svo öll, ég, helena, birkir og hulda á Moose.. hittum eitthvað af bekkjarfélögum Huldu seinna um kvöldið og tjúttuðum með þeim. Mukket smukket sjovt! Frábært kvöld bara :)

Nú ég vaknaði á réttum tíma morguninn eftir eða klukkan 8:00 og tók leigara útá Kastrup. Það hefur fylgt mér í gegnum tíðina að hitta á hina ótrúlegustu leigubílstjóra, sem hafa hinar misgóðu sögur að segja mér. En þessi sló öll met þegar hann tók ,,Ég hef nú verið leigubílstjóri í 25 ár!" á þetta og talaði um það að nú væri hann sko að fara að fá hið langþráða frí sitt sem hann hefði ekki fengið í 3 ár og hann ætlaði til Filippseyja og finna sér konu. Já takk fyrir hvorki meira né minna. Ég þakkaði fyrir, fyrir hönd íslensku kvennþjóðarinnar, að stefnan var ekki sett á Ísland. Hann má þó eiga það að hann kom mér út á flugvöll blessaður. Í þetta skiptið á Kastrup, borgaði ég ekki fyrir yfirvigt en það heyrir klárlega til undantekninga. Ég var lent í Osló fyrr en varði og komst með naumindum á réttan stað, eftir tilraun til að taka lest niðrí Osló í staðinn fyrir að tjékka mig inn. Ekki spyrja.. Brynju fann ég eins og ég átti að gera fyrir framan Aeroflot check inn og við féllumst í faðma. Ekki leið á löngu þar til við uppgötvuðum það okkur til mikillar skelfingar að vélinni þeirra Valdísar, Unu og Bjarkar hafði seinkað frá Íslandi og að þær myndu ekki ná því að fljúga til Moskvu eins og til stóð. Útlenska orðið fyrir hægðir var það sem bergmálaði í hausnum á okkur og svo setningar eins og: ,,Hvað eigum við að gera!? Eftir svona 5 mínútur í viðbót föttuðum við að við stóðum í vitlausri röð.. maðurinn fyrir aftan mig með 5 cm löngu neglurnar var á leiðinni til Finnlands en ekki Rússlands. Við köstuðum okkur á konuna sem var einmitt að fara að loka Aeroflot check inninu eftir 5 mínútur og tókum þá skyndiákvörðun að tjékka okkur inn og fara þá bara tvær til Rússlands og þær kæmu svo bara á eftir okkur.Við vorum þó á báðum áttum af því að við vissum að það voru einhver ótrúlega mikilvæg skilaboð á talhólfinu hennar Brynju sem við gátum ekki hlustað á því þetta var sænskt talhólf og eitthvað rembingsflókið að opna það í Norge. Valur maðurinn hennar Brynju var settur í málið og hann leysti það einmitt þegar við vorum við Gate-ið á leiðinni inn í vélina. Hann sendi okkur sms sem í stóð: ,,Bíða í Osló". Aftur bergmálaði orðið hægðir í höfðinu á okkur og í þetta skipti á öllum tungumálum sem við kunnum! (á frönsku er það kaka.. bara svona uppá fróðleikinn). Við fengum panic attack vægast sagt! Brynja gekk um gólf eins og hún væri með hríðir og ég nötraði. Töskurnar okkar voru komnar útí vél og við vissum ekkert hvað við áttum að gera. Áttuðum okkur á því í einni svipan að við værum einar og alls lausar ef við færum til Rússlands. Við tókum á það ráð að hleypa móðursýkinni út við gellurnar sem voru að vinna við gate-ið. Sögðum þeim hvernig væri í pottinn búið og að stelpurnar kæmu einmitt eftir 7 mínútur með Icelandair vélinni. Gellurnar ákváðu að hleypa smá spenningi inn í djobbið (ekki svo hresst að troða miðum inní vél allan daginn og segja gjörðu svo vel 800 milljón sinnum á dag) og seinkuðu vélinni okkar til Moskvu um korter. Það dugði! Stelpurnar upplifðu sig sem VIP þegar flugfreyjan leiddi þær fremst í vélinna þegar þær voru lentar og það beið þeirra bíll sem keyrði þær að Aeroflot vélinni. Fjúff þetta rétt slapp og hehey aðeins of mörg misánægð andlit sem biðu okkar inní vélinni. Hvað er korter af heilli mannsævi? Mér tókst að brosa eftir allt panicið og ég hló jafnvel smávegis taugaveiklunarlegum hlátri þegar við vorum sestar. Aðeins of mikið sko.

Þegar við komum til Rússlands hefði ég allt eins trúað því að ég hafi verið að stíga útúr tímavél en ekki flugvél. Þarna var stemmningin einhvernveginn allt öðruvísi en ég hef nokkurtíman upplifað. Það voru allir reiðir. Reiðir við mig, manninn á undan mér, fluguna í loftinu, vörtuna á nefinu á sér og bara lífið eins og það lagði sig. Fólkið sem var í vinnu á flugvellinum var einkennisklætt eins og herfólk.. ég var hálf hrædd við þetta reiða herklædda fólk ef ég á að segja eins og er! Rússneskir ferðalangar höfðu pakkað töskunum sínum rækilega. Fólk hafði vagúnpakkað töskunum sínum.. eða teipað þær allar saman í bak og fyrir svo þær líktust sem mest ostum. Hvað er þetta? Svo voru allir með vörtur, allir! Sumir á stærð við vínber. Hver veit nema þetta sé trend í Rússlandi.. mig grunar það. Úff. En já, lost and found var fyrsti viðkomustaður okkar í Rússlandi. Þar sem töskurnar frá Íslandi voru ekki í VIP gírnum og urðu eftir í Osló. Hressandi.. hálft verkefnið einhverstaðar útí heimi. En við fengum fínar móttökur og vorum sendar út í rútu. Rútan keyrði okkur á hótelið okkar, hótel Cosmos eða eins og Rússarnir skrifa það Hotel Kocmoc, skilji það hver eins og hann vill skilja það. Við tók bið, bið eftir herbergjum. Við biðum í lobbýinu í hátt í þrjá tíma. Hressar? Njedd! Ákváðum þá að fara og fá okkur að borða. Þetta kvöld fengum við í fyrsta skiptið í ferðinni, súrar gúrkur... og við áttum eftir að fá þær aftur! Eftir að við fengum herbergin og ég skipti um föt (sú eina sem var með töskuna mína og þess má geta að nýja taskan mín var öll rifin! (BITUR) og ég ákvað að taka upp sið rússneskra ferðalanga og ostateipa töskuna næst þegar ég færi einhvert úr landi! (afsakið fyrir langan sviga)) settumst við í fyrsta skiptið niðrá kaffi húsið ,,Bangsi í búrí" en það virtist vera þema hússins svo það fékk þetta viðurnefni. Sikkó. Svefn var orð sveipað gulli á þessari stundu og það var ljúft að loka augunum eftir að kamiluteið var komið niður.

Raunar er þetta orð ,,svefn? líka sveipað gulli á þessari stundu.. og ég er að hugsa um að leyfa augunum að lokast. Kannski er lika ekkert vitlaust að koma með framhald síðar þar sem þetta stefnir í dágóða færslu sem er nú þegar orðin góð. Held það bara.

To be continued...