mánudagur, febrúar 26, 2007

Afsakið hlé

Ég biðst velvirðingar á þessu bloggleysi. Fjölda margar kvartanir hafa borist en ég hef einfaldlega ekki haft svigrúm til að segja frá sjálfri mér. Það er óskandi að andleg heilsa aðdáenda og velunnara fari batnandi með bjartara útliti og útúr bústaðri færslu! Váúts! Grín. En ég er samt búin að vera í próflestri og er aftur í próflestri og byrjuð í nýjum kúrsi sem er leiðinlegri en Spaugstofan. Ekki grín. Veit ekki hvað ég á að gera við þennan kúrs satt að segja, hann er svo leiðinlegur að ég verð andfúl í hvert skipti sem ég les bækurnar. Ófremdar ástand, svo mikið er víst. En ég ætla ekki að þreyta þig með þrasi af því.

Um helgina, uppáhalds bloggefni mitt eru augljóslega helgarnar mínar. Vei. Um helgina var ég ein heima. Fór út í skyndi á föstudaginn og flippaði með Önnu bekkjasystur og hennar granna, Kamil (næstum því kanil). Það var eiturmagnað alveg hreint. Tjúttuðum og tvistuðum og vorum almennt með dólgslæti á dansgólfinu. Hér eru þau Anna og Kamil:



Á laugardaginn spratt ég framúr klukkan tíu eins og haninn hefði galað uppí eyrað á mér. Óð á vaðið og tók bössinn í bæinn. Þar dandalaðist ég um í góðan tíma. Keypti kaffi og te í tebúðinni, fór í second hand búðina hjá hommunum.. uppáhalds búðin mín, Myrorna.. hin uppáhaldsbúðin mín, keypti mér tíu rauða túlípana og eina rós í potti.. hélt heim á leið með bros á vör og barði engan lóm. Í strætó steig ég og hann var svo fullur að ég hélt hann myndi æla og deyja. Strætóbílstjórinn brunaði framhjá öllum milljón og fimm stoppistöðvunum á leiðinni og skildi fólkið sem þar beið eftir.. glottandi eins og hypoglottis. Þegar heim var komið var ekki um annað að ræða en að reyna við sjálfa mig. Ég tók vel í það og eldaði unaðslega máltíð fyrir einn. Sat hér við kertaljós, drakk vatn úr vínglasi, með blómin frá sjálfri mér í vasa á borðinu.. greiddi mér áður en ég settist og stundi yfir hverjum einasta munnbita (nei ok það er ekki rétt.. en fyrsta allavega). Hér er ég:




Ok ég var ekki ein ég var að ljúga.. hér er kærastinn minn Flame-maker Svensson, hann ætlar að verða slökkvuliðsmaður þegar hann verður stór..



Við áttum þarna saman afar rómantíska stund ég og my mistah.. good times. Þangað til að það var dinglað. Já ég veit, ég trúði því varla heldur. Á laugardagskvöldi.. hver gerist svo djarfur? Jú, einmitt. Það var nefnilega hann. Johan Tang, nágranni minn og tveir félagar með honum stóðu fyrir utan dyrnar og biðu spenntir eftir að ég opnaði. Þeir voru kátir og við spjölluðum í góða stund. En tilgangur þessa var þó aðalega að láta mig fá lítinn miða. Sem ég mátti ekki lesa strax. Alls ekki. Svo ég var ekki fyrr búin að loka hurðinni þegar ég opnaði miðann og las: Vil ni koma på fäst hoss os? Þetta er sænska og hún er kolvitlaus, en þýðir Hæ viljiði koma í partý til okkar? Svo var búið að gera þrjá litla kassa þar sem hægt var að velja á milli já, nei eða kannski. Ég varð agalega upp með mér því þetta var nákvæmlega eins uppsetning og á the ultimate viltu byrja með mér miðunum sem gengu á milli hér í Sverige þegar fólk var uppá sitt besta. En þar sem ég var búin að ákveða að taka því rólega með mínum manni þá ákvað ég að afþakka boðið, en gerð mitt besta til að halda krúttleika þessara samskipta áfram. Ég tók það ráð, þar sem ég var nýbúin að taka eftirréttinn útúr ofninum að setja þrjár muffur á disk og skrifa lítinn miða til þeirra, dingla bjöllunni hlaupa inn til mín. Þar gat ég fylgst með í gegnum gæjarann hvort einhver kæmi til dyra. Mér leið eins og ég væri orðinn sjö ára aftur.



..fékk meira að segja fiðring í magann.

Dagurinn í dag var sunnudagur með sól í heiði. Í tilefni af því bauð ég Tove í brunch og litaði á henni hárið.




Það var rokk með slammi og við fengum okkur pínu nammi. Já eða svona sjokkolade muffu, þær eru agalega góðar og hérna er uppskriftin Kladdmuffins fyrir þig og næstu helgi :)


Jasåh.. nú held ég bara að ég geti ekki látið bólið bíða mín mikið lengur. Ég ætlaði að setja fleiri myndir af hárgreiðslustofunni: Damernas frisör, en það verður varla af því. Ég er búin að setja þær hingað og þar má skoða þær ásamt fleiri myndum. Ákaflega skemmtilegt túlípana þema þarna í lokin.. gaman að þessu. Annars sendi ég ást mína til þín og vona að þú hafir það gott, ekki einn ekki tveir heldur þrír feitir kramar kringum hálsinn.

Skövde um næstu helgi.. ahh get varla beðið!

Love, love, löööööve
Lilý