fimmtudagur, september 29, 2005

Síðasta færsla var bara aðdragandi ferðarinnar.. ferðin sjálf og ferðalagið til baka er alveg eftir! HAHA svo þið sem ætlið að lesa verðið að því langt fram á kvöld og jafnvel fram undir morgun! Nei.. fólk virðist hafa átt í einhverjum erfiðleikum með að komast í gegnum síðustu færslu, sem var reyndar lengri en allar mínar ritgerðir í barnaskóla til samans, þannig að ég mun kannski reyna að stikla á stóru. Líka fyrir sjálfa mig þar sem ég legg ekki í aðra eins. En hér kemur samantekt:

Eftir að hafa syrgt nýju ferðatöskuna, þurrkað tárin og snýtt mér.. ákvað ég að opna augun og njóta Rússlands, félagskapsins og lífsins. Moskva er risastór.. huges.. gígantísk. Auglýsingaskiltin eru á stærð við Akureyrarsundlaug og byggingarnar eru hærri en allt (stærri en allt!). Þær eru svo stórar að það tekur verulega á fyrir lyfturnar að komast upp á þá hæð sem maður óskar sér.. þær villast gjarnan. Sennilega af því að hæðirnar eru svo margar og það er erfitt að hitta. Við vorum enn og aftur eins og VIP, lögreglan fylgdi okkur hvert sem við fórum, við vorum með passa allan tíman og vorum alltaf of uppteknar til að borða meira en bara forréttinn á kvöldin. Dagurinn okkar var bókaður frá klukkan 8 á morgnanna til 1 eftir miðnætti. Fjölbreytileikinn var svo mikill að hver sem er hefði getað logið því að okkur að það sem við gerðum um morguninn hefði í raun verið eitthvað sem við gerðum í síðustu viku.
Keppnin var ótrúlega flott, milljón verkefni sem áttu skilið að vinna og fullt af verkefnum sem ég skildi ekki eitt orð í.. stóð bara, gapti og sagði já á þeim stöðum sem ég hélt að það ætti við.. ef ég þá hætti mér í að spyrja eitthvað útí hlutina. Ég kynntist fullt af frábæru fólki sem ég hef einsett mér að halda sambandi við. Nú þekkir maður einhvern allstaðar í Evrópu.. þannig að interail gæti jafnvel tekið heilt ár! Jafnvel tvö ef maður reiknar með góðu stoppi hjá Drúggnum!Við gerðum ótrúlega margt annað en bara að standa og verja verkefnið okkar með bros á vör. Við fengum ,,sæt sín" um Moskvu, sem hefði reyndar getað verið betra þar sem rigningar suddi og kulda drellir gerðu sitt besta til að gera útaf við okkur og þá aðalega þá sem voru í sandölum. Ég klappaði mér ærlega á öxlina og sagði: ,,Þú ert hetja" þegar ég kom loksins heim á hótel eftir þennan dag. Ég var búin að vera á sandölum allan daginn (bambussandölum) í rigningu og pollum.. ekki nóg með það heldur slitnaði bandið á milli tánna á öðrum sandalanum og um tíma labbaði ég barfætt um stræti Moskvu. Alveg þangað til Una svipti reiminni úr skónum sínum og ég batt botninn af sandalanum á fótinn á mér og lét kalla mig Hercules það sem eftir var af deginum. Þeir sem vilja mega alveg kalla mig það ennþá (soldið trukk svona). Una bograði um á sínum skó, með tunguna lausa eins og einhver dissari og var ekkert betur sett en ég.. réttast væri að ramma inn reimina! En hún var öll í drullu og drazli þannig að ég verð að láta það nægja að þakka Unu fyrir sína fórn með orðum. Takk Una takk takk!
Við fengum ýmsar aðrar skoðunarferðir. Um söfn og garða og stofnanir og ég veit ekki hvað og hvað. En það verður að segjast að rússneskan vill loða við enskuna hjá guide-unum og túlkunum þannig að ég veit því miður lítið um þá staði sem ég sótti heim. Þeir túlkar sem voru eitthvað í áttina að því að vera skiljanlegir á enskunni töluðu svo hátt að maður missti einbeitinguna eða voru með svo mikla trukkastæla að maður heyrði ekkert nema bassann koma lengst neðan úr botni búksins.
Rússunum kynntumst við aðeins og þá aðalega þeim hjálpurum sem hjálpuðu okkur hvað mest. Þeim Andrey og Andrey.. betur þekktir sem Addi stuð og 23. Þeir voru báðir með mjög sterk karakter einkenni og sérstakir á sinn hátt. En við fílum þá og hvorugur þeirra var með vörtu í andlitinu.. sennilega einu Rússarnir sem heyra til þess hóps.
Lokakvöldið var stórkostlega skemmtilegt og ég áttaði mig virkilega vel á því hvað ég var búin að eiga góða viku í þessu furðulega landi, með þessu ólíka fólki. Veislan sem við vorum í kostaði 18.000 krónur á kjaft og allt var eftir því. Maður þurfti ekki að hreyfa sig við matarborðið þar sem fólk kom og setti það sem manni langaði í af borðinu manns á diskinn hjá manni (maður,manni,manns,manni,nonni?). Ótrúlegt! Þessi ferð var ótrúleg! Ótrúleg!

Eftir Rússlandsdvölina fékk ég tækifæri á að koma til Íslands þar sem það var ódýrara að fljúga þaðan og til Nice með millilendingu í Köben, heldur en frá Amsterdam til Nice (hvað er það?!). Það þótti mér alls ekki slæmt, ég hitti Bebbu.. ó kærkominn fundur! Ég átti heimsins besta hang með henni. Veit ekki um neinn sem er betra að hanga með. Elmar hitti ég líka og hann sagði mér bestu sögu sem ég hef nokkur tíma heyrt (ég þá er engin kaldhæðni hér á ferð!) Sársaukafull lexía Stóra Héra.. finni hana hver sem getur. Ég Hitti líka Elfu sem ég elska like crazy (lov ú all!). Ma&pa buðu mér að koma heim til þeirra og ég var þar í sólarhring. Besti sólarhringur þessa árs verð ég að segja. Allavega sá alnotalegasti. Óskar sá ég í 5 mínútur.. en það voru líka 300 sekúndur, sem verður að teljast gott. Ásgeir lubbi var jafn sætur og mig minnti.. enda breytist það sennilega seint. Amma og afi komu og borðuðu grillaðan silung með okkur.. og ég hefði ekki getað óskað mér betri borðfélaga :) Heiðrún Frakklandsfari og Herdís móðir hennar komu í heimsókn og borðuði með okkur ís og ávexti.. hlakka til að fá Heidi til France. Jæja.. ég tala eins og ég hafi verið frosin í fimm ár, hafi loksins að þyðnað og fengið að hitta allt þetta fólk. En ætli það segji ekki bara hvað mér þykir vænt um þetta lið. Annars hefði ég viljað hitta miklu fleiri líka.. það er víst bara ekki allt hægt á þremur sólarhringum.

Nú er ég komin til La Valbonne og hef það ótrúlega gott.. allt er eins og það á að sér að vera. Ég byrjaði í megrun í morgun.. stóð mig vel í allan dag og var að slátra 85 grömmum af belgísku súkkulaði. Megrun á morgun?




(Þetta er víst styttra en síðasta færsla)