Ég er búin að setja inn svo mikið af myndum í kvöld að það er ekki fyrir hvítan mann að skoða það allt saman. Ég hef náttúrulega ekki verið með tölvuna mína tengda við net í óraóra tíma þannig að myndirnar hafa safnast upp og núna er ég búin að henda þeim öllum inn.. léttir fyrir mig vei! Hver veit nema ég muni gera þetta eitthvað ögn reglulegar hér eftir. En fyrir þá sem langar til að njósna um hvað ég hef verið að gera í Frakklandi og nú í seinni tíð hér í little Britain hef ég sett inn link hérna til vinstri.. eða hérna fyrir ofan. Skil ekki alveg hvað er í gangi með síðuna hún er í einhverjum undarlegum keng. Kann ekki á svona lagað. En hér er líka linkurinn, svona til að hafa hann með blessaðan http://langa.unak.is/gallery/view_album.php?set_albumName=Lily
Framundan er óendanleg dagskrá.. allt að gerast og meira til. Anna og Snæfríður eru á Æslandinu eins og er og koma aftur á þriðjudaginn. Um helgina ætla ég að halda út á lífið með íslensku au pair stelpunum sem ég kynntist í kórnum hjá Íslendingafélaginu. Maður er svo mikill Íslendingur í sér að maður mætir í lopanum á kóræfingu í íslenska sendiráðinu í London. Ég get svo svarið það. Svo er þorrablót fyrir frægðarmenn og kappa þann 25.febrúar. Palli og milljónamæringarnir leika fyrir dansi fram á rauða nótt. Ég hvet alla Íslendinga heima og að heiman til að mæta með Jens í glens hingað til London. Það er víst trendið í dag að kaupa sér verslunarferð til London og smella sér á blót í leiðinni. Hver veit nema blaðamenn blaðamannanna, félagarnir hjá Séð og heyrt verði á staðnum og smelli nokkrum góðum af genginu. Áður en það verður (blótið) munum við bregða okkur á skíði til Ítalíu með allri familíunni hennar Önnu og Heiðrún kemur með líka sem barnepige, ó ég hlakka til! Svo er nú ekki ómerkilegri ferð í vændum, en sú sem liggur fyrir í byrjun mars. Þá ætla ég að bregða mér heim á klaka í nokkra daga og njóta þess í botn. Eggertsgatan verður skreytt í tilefni af þessum viðburði vænti ég og fregnir herma að það verði farin skrúðganga frá Keflavíkurflugvelli og inn eftir Reykjarnesbrautinni eins og hún leggur sig. Minna má það nú varla vera. Þegar ég kem svo út aftur get ég (og ég geri mér grein fyrir því að ég hef ekkert verið að ofnota entertakkan í þessari færslu) látið mig hlakka til að fara til Dublin með kórnum mínum kæra, 25. mars.. ó hallelúja það verður eitthvað. Svo er það páskafríið.. ég hef heyrt Karabískahafið nefnt í því samhengi.. Saudi Arabía hefur komið við sögu en núna síðast var Frakkland efst á baugi.. og boy líst mér vel á það! Það væri notalegt að líta á liðið þar aftur, er strax farin að sakna germönsku gullmolanna. Þá veit landinn sem les þessa vitleysu eitthvað um komandi tíð í mínu koti.. morgundagurinn og allir hinir sem á eftir honum koma verða svo að leiða það í ljós hvort eitthvað af þessu eigi eftir að standast en ég geri fastlega ráð fyrir því að þetta sé að megninu til byggt á traustum grunni. Kemur í ljós!
Ég er orðin svo syfjuð núna að ég er farin að ganga vakandi í svefni.. því býð ég góða nótt án nokkurar styttingar.. skilji þeir sem vilji (BB.. þá aðalega þú)
God nat mine kære nordiske venner!


<< Home