föstudagur, desember 02, 2005

Hér í France eru hundar útum allt. Maður kemst ekkert án þess að hundur mæti manni slefandi og allt tileyrandi. Þá er ég að tala um útí búð og á pubbnum og bara allstaðar.. over all eins og ég myndi segja ef ég væri svöl. Því miður er ég þannig gerð að ég er ekkert sérstaklega gefin fyrir hunda. Yfirleitt líkar mér bara alls ekkert svo vel við þá. Ég haaaata þegar ég er labbandi fram hjá húsi í sakleysi mínu og þá kemur hundur alveg spindegal hoppandi og glefsandi eins og það sé eitthvað.. ég er ekki gerð fyrir svona lagað. Of róleg kannski.. nei ég veit það ekki.. mér líkar þetta bara ekki vel! Í gær ákvað ég svo að fara með Snæju pæju í kraftgöngu. Smellti henni í snjógallan og hoppla! í kerruna án þess að klemma mig (stolt). Nema hvað (þetta er alltaf sagt þegar það eru sagðar góðar sögur).. við vorum á labbinu eftir einni krækklóttu götunni hérna í nágrenninu þegar það koma þessir hallæris hundar á hundavaði að okkur geltandi og gólandi. Ég get svo sagt ykkur það.. mér stóð bara ekkert á sama. Annar var stor og hvítur og svona líka óhemju ófríður auminginn og í alla staði óaðlaðandi. Hinn var lítill loðinn ekki skömminni skárri og litla hundsspottið elti okkur í þessum göngutúr í 30 mínútur! Sama hvað ég sótbölvaði honum og sagði honum að fara heim á öllum þeim tungumálum sem ég kann og hundamáli líka þá trillaði hann á eftir mér eins og hann fengi borgað fyrir það.. stundum á undan mér og þá með skottið sperrt uppí loftið svo skein í skoruna á honum. Góður með sig..

Nei ég veit ekki hvað þetta er með mig og hunda.. ég bara öhh.. mér finnst þeir óþarflega uppáþrengjandi og slefandi og æjégveitþað ekki. Hundleiðinlegir bara. Svo hef ég lent í allskonar svona hundaveseni eitthvað. Ég gef greinilega ekki góða hundastrauma frá mér.

Þegar ég fór til Kogsbolle með ömmu og afa (til kurt og bente í dk), þá fengu amma og afi svefnherbergið þeirra og þau sváfu útí hjólhýsinu í garðinum. Ég líka.. og hundurinn líka. Uppí hjá mér. Ég ákvað það ekki og hafði ekkert val um það. Sem mér finnst alveg fáránlegt enn í dag. Allavega. Ég sofnaði nú á endanum, seint og um síðir með hundinn andandi uppí eyrað á mér. Kósý.. nei. Svo fór mig að dreyma. Ég stödd í útlöndum með snert af heimþrá og að sjálfsögðu fór mig að dreyma að ég væri heima á Íslandi.. ég var nánara tiltekið í Hljóðarklettum með mömmu og pabba og allri familíunni. Við vorum þarna í bongóblíðu allir hressir og kátir og á einhverjum tímapunkti fórum við í sólbað.. og ég úr pilsinu mínu. Allt í lagi með það.. svo vorum við að fara heim afur og einhverra hluta vegna drógst ég aftur úr hópnum þannig að það voru allir komnir langt á undan mér þegar ég fattaði að ég hefði gleymt pilsinu mínu.. Náttúrulega svo vön að labba bara um á brókinni! Þannig að ég brá á það ráð að kalla á mömmu og segja henni frá því. Þegar manni er að dreyma og maður reynir að kalla þá kemur stundum ekkert hljóð, það hafa örugglega allir lent í þessu einhvertíman. Svipað og þegar maður er að fá sér eitthvað að drekka í draumi og það kemur ekkert. Ok ég stóð þarna á öskrinu alveg að kafna því það kom ekkert hljóð.. farin að grenja og hvaðeina alltaf reynandi aftur og aftur að kalla en ekkert heyrðist í mér þangað til allt í einu að ég rauf hljóðmúrinn og argaði svoleiðis að það bergmálaði í fjöllunum í Noregi (það eru víst engin fjöll í Danmörku). Ég náttúrulega vaknaði við öskrin í sjálfri mér og hundurinn að sjálfsögðu líka.. hann byrjaði að góla eins og óður og allir í hjólhýsinu vöknuðu og fóru að athuga hvað væri í gangi. Ég náttúrulega var eins og áður sagði lítil, feimin.. róleg já alltaf nema á þessu eina augnarbliki þannig að ég vissi ekkert hvað ég ætti að gera.. hvernig ég gæti feisað það að hafa vakið alla með einhverjum apaöskrum. Tók á það ráð að klemma saman augun og þykjast vera sofandi. Góð Lilý. Þetta bætti ekki vinskapinn milli mín og hundsins eins og gefur að skilja og þetta hefur einhvernveginn bara verið svona alltaf.. ég og hundar erum ekkert töff saman.

Þess vegna þykir mér einmitt virkilega hressandi.. gefandi jafnvel að Anna og Elfar ætla að fá sér hund. Partý!

Ég trúi ekki að allt þetta hafi verið um hunda.. ég þarf að fara að blaða í alfræðibókorðabók fyrir umræðuefni.