Almáttugur minn! Á ég eitthvað að reyna að lýsa þessum tónleikum? Guð og góðir menn! Þvílíkt og annað eins hef ég sjaldan upplifað.. þetta voru svo kelikkaðir tónleikar, svo fallegir, einlægir, rokkaðir, hugljúfir.. spinnandi spotta og gaurar sem glotta (hvaðan kom þetta?) Standandi tónleikar.. blóðlausir fætur og bólgnir.. enda bjúgurinn farinn að segja til sín ;) Neinei.. í heildina séð var þetta stórkostlegt.. svo töff! Ég hló, grét og stundi án þess að fatta það fyrr en eftir á þegar allt var búið. Væri svosem alveg til í að fara á þá á Íslandinu góða eftir 6 daga en ætli maður láti þetta ekki duga.. þeir sem ætla að fara heima geta allavega látið sig (?beg) hlakka til, með góðri samvisku. Ahh.. þá er það komið.
Helgin var í allastaði unaðsleg. Yndi að hitta Heidi aftur.. fór meira að segja upp í fjöllinn til hennar. Eða þannig.. hún býr í krúttí krúttlegum gömlum bæ af borginni Annecy. Kastalinn fyrir ofan og dýflyssan fyrir neðan. Hún sjálf býr lengst uppí einhverju húsi í risíbúð og þar af leiðandi er allt heila klabbið undir súð. Einstaklega kósý.. veggfóðrar í rósóttu og smá svona sjúsk sjarmi. Amelie fílingur í þessu öllu saman. Versta og besta.. það fer eftir því hvernig á það er litið.. við helgina var svo þetta hrottalega kaupæði sem greip lýðinn. Ég get svarið það að vísakortinu mínu blæðir (þetta var grín mamma). Við Heiðrún erum hroðalegir kaupormar þegar við komum saman og eigum klárlega erfitt með að hemja okkur á stundum. En það er nú bara alveg ágætt líka.. haaa.. um að gera að eyða peningum svona endrum og eins.
Welly smelly.. segi þetta gott í bili.. yfir og út.. og allt í hnút!
Ást, blóm og bómullarhnoðrar.
Lilý


<< Home