France is fine thank you! Á föstudaginn fór ég til Opio í heimsókn til íslensku fjölskyldunnar sem ég hitti hérna í Valbonne. Þau buðu mér í mat og ég þáði það að sjálfsögðu, með þökkum. Þau voru að flytja hingað og eru enn að bíða eftir húsinu sem þau keyptu, þannig að núna eru þau í tímabundnu húsnæði sem þau leigja. Það er hins vegar ekki af verri endanum verð ég að segja. Ég gekk inn í þetta steypuflykki (hálfgerð höll) og við mér blöstu ótal andlit af mismunandi Lúðvíkum í öllum sínum herskrúða. Þau leigja sem sé hús af einhverjum frönskum greifa og þessir Lúðvíkar eru bara í ættinni.. ekkert flóknara en það að við séum með mynd af Adami Magnússyni hangandi upp á vegg heima. Nú garðurinn er þannig af guði og mönnum gerður að í honum eru 2500 plöntutegundir, sundlaug og lítið hús fyrir garðyrkjumanninn sem býr þar. Róum okkur nú aðeins sko. Með mann búandi í garðinum hjá sér bara.. og konuna hans líka reyndar.. já takk, sé þetta fyrir mér í konungsveldinu Löngumýri 20. Þessi garður þykir það merkilegur að þangað er farið í skoðunarferðir með hópa af ferðamönnum. Þarna sat ég sem sagt innan um 2500 plöntur og yndislega fjölskyldu, át yndælismáltíð og vínber úr garðinum á eftir. Jiminn mér fannst þetta bara vera draumur.. búandi á herragarði.. ég get svo svarið það.


<< Home