Bloggheimurinn er að fara til fj..dans held ég. Nú er svo komið að mér hefur verið rúnkað, og það af elfu sem er ein af mínum allra bestu vinkonum og uppáhalds frænkum. Þetta kann að hljóma sjúkt.. (kann að hljóma.. þetta hljómar mjööög sjúkt).. en reglurnar eru þessar:
1. Segðu frá fyrsta kossinum hver fékk hann og hvernig var hann
2. Hver er uppáhalds liturinn þinn
3. Hvað er það heimskulegasta/vandræðalegasta sem þú hefur gert.
Ok hér kemur mitt rúnk:
1. Jón Ingi Sveinbjörnsson fékk minn fyrsta koss. Og sá gamli er nú bara vel verðugur þess. Fyrsti kossinn er eitthvað sem allar stelpur, og örugglega strákar líka, bíða forvitnar eftir og hafa gríðarlega eftirvæntingu um hvernig hann verði... öööh ætli ég muni lyfta öðrum fætinum af ást? Fær maður fiðrildi í magan? Og fleiri svona spurningar um bleik ský og þið vitið.. Minn koss var ekki að dansa.. en ég fékk fiðrildi í magann vei!
2. Uppáhaldsliturinn er grænn
3. Það alheimskulegasta og jafnframt vandræðalegasta sem ég hef gert og það með fullu viti var þegar ég var með beg í Second Love búðinni í Köben. Við vorum búnar að fara hamförum um búðina og ég komin með 30 flíkur í fangið. Mátunar klefinn rétt rúmaði mig og mitt hafurtask þannig að mátunin hófst. Ég mátaði og mátaði og mátaði allt mögulegt (ekkert sem ég geri skemmtilegra..) og svo var það orðið þannig að allir snagarnir í klefanum voru orðnir overloaded af fötum þannig að ég tók það ráð að hengja bara restina á slánna þar sem hengið hékk. Þarna stóð ég fyrir framan spegilinn á narínum einum fata og tók mig út.. var svona nett að tékka hvort ég hefði ekki fitnað um sumarið.. jú mér sýndist það þegar eitthvað dularfullt gerðist. Ég heyrði dínk fyrir aftan mig og sá í speglinum tvo stráka.. tók mér smá stund í það að velta því fyrirmér hvernig þeir hefðu komist inn í klefann þegar ég fattaði að hengið hafði hrunið í gólfið og ég stóð þarna allt að því nakinn fyrir framan alla búðina. Hressandi tilfinning.. mjög hressandi.
Þá er ég búin að rúnka mér og ég ætla að rúnka Huldu Hallgríms, Lilju, Birki, Bjarka og Björk.
Takk fyrir túkall


<< Home