Á maður eitthvað að vera að svara þessu klukki.. æjégveitþaðekki.. er búin að vera að draga það niðrí little toe. Hef þó tekið þá ákvörðun að láta mig hafa það og ljóstra upp um 5 staðreyndir sem ekki allir vita. Verði landanum að góðu.
1. Ég heiti Lilý. Ekki Lillý, ekki Lilli, ekki Lili, ekki Lillllelilllelilllý (bölvaður sért þú maður með míkrófón), ekki Lilja, ekki Lillíja, ekki Elín og þaðan af síður Guðný. Ef einhver var ekki viss þá veit hann það núna. Ég er orðin langþreytt á þessum misskilningi..
2. Mér hefur alltaf þótt vænt um pabba minn.. og mömmu að sjálfsögðu líka. Þegar ég var lítil grenjaði ég undan krökkunum í skólanum af því að mér fannst þau alltaf vera að gera grín að pabba mínum.. og það sem var verra.. þau voru að ljúga uppá hann. Þetta var rétt fyrir jólin og það var sungið hástöfum á hverjum degi (bara til að níðast á mér og mínum) Adam átti syni sjö, sjö syni átti Adam! Ó mín litla sál og mitt litla hjarta.. pabbi minn átti bara tvo stráka og það sem meira var þá hélt ég því kokhraust fram og geri það enn að ég sé dóttir föður míns og að Adam eigi þar með eina stelpu líka. Hef aldrei verið fyllilega sátt við þetta jólalag
3. Alla mína tíð hef ég skammast mín fyrir það hvernig ég kom í heiminn. Nær dauða en lífi orgaði ég eftir að það var búið að dæla upp úr mér.. og það munaði litlu get ég sagt að illa færi. Það eru til myndir af mér þar sem ég er í gifsi og með slöngur í nebbanum og hálsinum og útum allt, ligg í boxi með bumbuna út í loftið sprikklandi eins og nýveiddur silingur. Það þurfti að dæla uppúr mér eins og ég sagði en ég hef fáum sagt að það var vegna þess að ég gerði mér lítið fyrir og kúkaði í legvatn móður minnar og saup svo af seiðinu. Þannig að það munaði minnstu að minn eigin saur yrði mér að bana. Fyrir þetta hef ég skammast mín svo lengi svo lengi.. á gelgjunni gat ég ekki einu sinni hugsað til þess. Fáir vita þetta, en núna hef ég endanlega komið þessu frá mér og er hætt að skammast mín. Ég var óviti.. og það kemur ekki prumpulykt þegar ég ropa, eins og ég hélt svo lengi.
4. Ég sef fast.. ég er önnur manneskja ég svefni. Dísa frænka hefur þurft að drösla mér upp um hæðir 15 ára gamalli.. þar sem ég þverneita að ganga og lippast niður eins og tuska við hvert tækifæri. Ég treð hári mínu upp í hvern þann sem leggst mér við hlið.. og reyni svo að fá fólk til að tala við mig á dönsku. Með öllu móti ómöguleg í svefni og ætti því að hætta að sofa.
5. Ég hef alltaf haft dálæti af því að skoða hallir og postulínsstell og gömul föt og dúka og húsgögn og bara allt sem er gamalt.. hef líka haft sérlegan áhuga á því að finna leynigöng í húsi einhvertíman.. og sofa í stóru rúmi með stórri alvöru himnasæng, þessir prinsessu stælar hafa búið í mér síðan ég sat og át blómið í bleika rjómatertukjólnum hérna í den. Nú bý ég tímabundið á herragarðinum La Buscarela.. finnst ég vera að lifa drauminn.
Þá er það búið og ég svaraði mínu klukki.. ég klukka ásgeir.. af því að ég veit að hann hefur ekki bloggað síðan hann bloggaði síðast fyrir hálfu ári síðan eða svo.. og svo þori ég ekki að klukka fleiri þar sem blogghringurinn minn er búin að mynda keðju til Kína að mér óafvitandi þar sem ég fer ekki svo oft á netið hér í prinsessudraumnum mínum. Ég ætla hins vegar að vera stórtæk og klukka alla þá sem þetta lesa til að skrifa mér e-mail.. það væri gaman :) lily@vma.is jibbí!
Kveð að sinni..
Lilý a.k.a Guðný


<< Home