sunnudagur, október 09, 2005

Fréttaskot

Jæja já.. fréttir? Ha.. Margt hefur gerst síðan ég skrifaði um herragarðinn hérna síðast, sumir vita nú allt af því og aðrir svolítið. En þannig er mál með vexti að ég tók þá afdrifaríku ákvörðun að skipta um fjölskyldu hérna úti (ekki heima það myndi aldrei gerast!). Aðstæður voru bara þannig að allt var afar óþægilegt og óhentugt. Þegar hlutirnir eru þannig þá nýtur maður sín ekki eins og maður á að gera og tíminn verður að einhverju til að telja niður. Sem er alls ekki nógu sniðugt, því að tíminn á að vera dýrmætur.. ekki satt? Ég var hins vegar svo ótrúlega heppin að kynnast þessari íslensku fjölskyldu sem er í einu orði sagt yndisleg og sá að ef ég væri innan um hana þá væru hlutirnir allt öðruvísi. Þeir sem hafa lagt stund á stærðfræðina, geta eflaust lagt tvo og tvo saman og fengið það út að nú er ég í faðmi íslensku fjölskyldunnar og líður afskaplega vel. En meira af því síðar.. nú er Babsí komin og ég þarf að þjóta..