Já nú ætla ég að blogga. Hvað sem hver segir.. netið er komið í eplið en ekki ibm félaga minn þannig að hér sit ég heima í La Bastide og skrifa á hvít epli, unaður. Það er ekki beinlínis lognmolla hér á La Bastide frekar en annarstaðar í France. Endemis óeirðir og vitleysa útum allt, skil ekki hvað vakir fyrir svona fólki. Er ansi hrædd um að hér séu þeir að verki. Líklegir til alls þessir bandítar. Grandparents frá Íslandi eru í heimsókn hérna núna og það kom á daginn að þau eru alveg rokorknar yndislegt fólk. Kom reyndar lítið á óvart þar sem Frú Pitt Aðalsteinsson er ekki lítið yndisleg sjálf frekar en aðrir sem bera þetta nafn. Pitt fólkið er semsé frábært fólk. Brad frændi þeirra þar með talinn. Í tilefni að því skruppu Aðalsteinsson hjónin til Monaco í tvær nætur og erum við hér heima með börnin. Gengur eins og í lygasögu allt saman. Heiðrún var hjá mér hérna um helgina og var hin kátasta. Frábært að fá hana í heimsókn. Hlakka bara til að hitta hana aftur á fimmtudaginn í Lyon. Þar ætlum við að fara á tónleika með Sigurrós og overnatta á farfuglaheimili aðfaranótt föstudagsins. Svo (þetta orð minnir mig alltaf á 7.bekkjar ritgerðirnar mínar! Húrra fyrir svo!) ætlum við að taka strætó til Annecy á föstudaginn og ég ætla að dvelja þar hjá henni fram á sunnudag. Stórgott ferðalag fyrir höndum. 20 dagar í Gran Canary jiiiminn.. jólin fara bara að koma! Ég hugsa að ég verði gjaldgeng í heimsmeistara keppni í jússi eftir þessi jól. Sé mig fyrir mér á ströndinni þar sem ég mun japla á laufabrauði og hangiketi. Eða bara dansa húlla upp á þaki. Guuuð hvað ég ætla að njóta þessara jóla í sól og sumari. Er ekki frá því að þetta verði himneskt. Bilin hafa ekki verið mörg í þessari færslu hingað til og ég hef tekið þá ákvörðun að hafa þau engin í þetta skiptið. Ég ætla mér þó að koma með nokkrar hamingjuóskir hérna í lokin. Helena til hamingju með nýja kærastan Carter Jenkins.. ég vona að þið munið njóta lífsins saman í blíðu og stríðu. Elfa til hamingju með það að hafa komið agli og axeli í ballerínu búning.. geri aðrir betur! Bebba bjútí til hamingju með lífið og lukkuna.. nýju gleraugun og klukkuna. Sólveig til hamingju með nýja orðið.. þú stendur þig vel. Lilja mín.. til hamingju með uppgjör við sjálfa þig í karlamálum og innilega til hamingju með að koma útúr söngskápnum, þú hefur vafalaust staðið þig með stakri prýði. Verst að missa af þessu. Íslendingar nær og fjær.. þó aðalega heima.. til hamingju með veðrið!


<< Home