föstudagur, nóvember 25, 2005

Jæja maður er að passa bara. Nú er ég sannfærð um að fólk hefur orðið slegið yfir þessari fyrstu setningu. Kemur á óvart Lilý, þú ert au pair.. oh gosh say something people don't know! Svona getur maður verið ófrumlegur jahh bæði oft á tíðum og oft og tíðum as well. Nú er ég búin að slá mig utan undir og skipa mér að þegja. Þó ég sitji reyndar hér í þegjanda hljóði (segir maður ekki svoleiðis?) Jájá ok..

Í gær kom hingað gestur. Þessi gestur er yfirkokkurinn á veitningastaðnum hjá Önnu og Elfari í Reykjavík. Sá staður heitir B5, og sá maður er þar kokkar heitir Gunnar Karl Gíslason. Fyrir mér gæti hann allt eins heitið Geir Ármann Gíslason. Ég get svoleiðis svarið það að maðurinn er bara alveg nákvæmlega eins! Hann lítur eins út, talar eins. hreyfir sig eins, segir eins sögur og ég á ekki til eitt aukatekið.. hann ræskir sig eins. Ég sat s.s. við hliðina á Geir í gær.. einkar heimilislegt og minnti á gamla tíma á hólum.. sögustund með Bjössa Viff og Geir lemur mann í bakið til að ná athygli. Ég hefði kannski átt að biðja Gunna Kalla að lemja mig í bakið bara upp á stemmninguna. Nei það hefði nú alveg slegið mig útaf laginu.. sem fyrir var rammfalskt. Haha slegið.. ég reiti þá af mér! Jájá ég er ekki frá því að maður sé farin að sakna 4H og öllum þeim skræpóttu, litskrúðugu einstaklingum sem í honum sátu. Sé þau á sextándanum.. jiminn. Ef ég væri með stúdentshúfuna hérna hjá mér þá myndi ég setja hana upp og fara í hugarferðalag.. en hún er heima.

Annars er farið að snjóa í Frakklandinu. Frost og kuldi, menn og mýs verða úti.. mér líst ekkert á þetta. Það þyrfti að fara að gefa þessum útigangsmönnum lýsi. Suður hluti Frakklandsins hefur þó sloppið við þessi ósköp.. hér hefur ekki enn fallið fönn á jörð.. svo ef fólk er að hugleiða það að gerast útigangsfólk.. slást í för með sígaununum.. þá er þetta rétti staðurinn. Klárlega. Ekkert að vera að þvæla til Parísar í slíkum erindagjörðum, þar er ekki gott að vera á götunni. Heyra í mér. Nei þetta er ekkert grín. En ég segji nú bara eins gott að það eru ekki margir útigangsmenn á Íslandi.. ef 3 og 5 gráðu frost fer alveg með menn. Ó sei sei.

Mig langar á árshátíðina.. sveiattan.. ég var að fatta að ég er líklega eini meðlimurinn úr gömlu stjórninni sem lætur sig vanta. Maður á ekki einu sinni að láta þetta fréttast um sig. Þetter ekki hægt. Meiri vitleysan. Menntskælingar eru gott fólk.. sagði hún rogginn og þandi út brjóstkassann þar til hún breytist í uglu.

Í dag rifjaði ég upp með sjálfri mér og Snæfríði( sem er yngst (1.árs) af "börnunum mínum") að það er vont að klemma sig. Ég er reyndar alltaf að minna mig á þetta þegar ég smelli henni í kerruna. Þoli ekki þessa smellu.. svona smella eins og var eða er alltaf á hjólahjálmum og jújú það kom fyrir að maður klemmdi sig á þeim. Kannski er ég bara vanhæf í því að smella svona þar sem mínir fingur eða mitt hálsakot eru nálægt. Gott innlegg í frábæra færslu.

Fékk vægast sagt dularfullt sms áðan. Í því stóð: Mugison. Mér krossbrá og byrjaði að ímynda mér að viðkomandi sendandi hafi fengið geðhvarfasýki og ímyndað sér að ég væri mugison. Jafnvel flaug sú hugmynd í gegnum hausinn á mér að viðkomandi hefði breyst í mugison og væri að segja mér það í afar stuttu máli. En svo læddist það aftan að mér að hugsanlega hafi viðkomandi verið á tónleikum með mugison. Þá varð ég öfundsjúk. Minntist þess hvað hann var góður á græna hattinum og táraðist. 2 birds.. ó lord.

Jæja.. eins og þetta sé ekki orðið of langt. En hey! Fullt af flottum bilum. Ef ég væri 13 ára og kynni að setja svona liti inn í textan þá myndi ég hafa bilin í litum.. röndótt jafnvel og sum doppótt. En ég er ekki 13 ára og ég kann ekki á svoleiðislagað. Hvað þá á kínverskum blogger!

Mússí múss.. súkkulaði múss!