þriðjudagur, nóvember 22, 2005

Nú er það mér um megn að skilja af hverju blogger er á kínversku hérna hjá mér í litla eplinu í France. Já nei ég skil það ekki.

Hins vegar eru miklar pælingar í gangi með nuddgallan þessa dagana. Yfirleitt stoppum við samt alltaf á peningavandræðum. Einhvernveginn ætlum við samt að komast í gegnum þetta og meika það feitt.. öll börn í heiminum verða nudduð í nuddgallanum og við sitjum sáttar eftir. Lítum til baka og fyllumst stolti yfir uppeldisfræðiverkefninu okkar. Ha, já ég er að meina þetta. Okkur varð þó á að spyrja hver aðra hvernig mætti leysa þetta með peningana og eins og oft áður kom Una með lausnina. Hún myndi bara ná sér í ríkan eiginmann og það ekki síðar en núna. Svo hún googlaði upp "rich husband" og fékk þetta: http://www.economics.pomona.edu/wykoff/elisabeth'swedding.jpg Sátt er hún Elísabet vinkona mín. Gaman að þessu hjá henni. Spurning hvort hún haldi úti heimasíðu um brúðkaup hennar og ríka eiginmannsins, eða hvort þetta sé bara í fjölskyldu albúminu.. here we are, me and my rich husband. Sperrt eins og geit segji ég, sperrt eins og geit.

Annars er orðið kalt í France. 0 gráður hvorki meira né minna á morgnanna og svo skánar það nú yfir hádaginn og fer upp í 15 gráður. Hitinn í húsinu hefur reyndar sveiflast með hitanum úti þar sem kyndingin hefur ekki verið að virka fyrr en í aftur í dag. Fremur óhressandi svona. Óhressandi veðurlag. Hver samdi það eiginlega?! (sorry) En allavega kom rafvirkinn í dag með sínar skítugu krumlur og gerði við pakkann.. þannig að ég ætla í heitt bað á eftir, takk fyrir túkall. Búin að hlakka til þess í allan dag... jiii hvað það verður dásamlegt!

Jájá svo er bara miðvikudagur á morgun.. ég á ekki til eitt aukatekið orð!