O jii.. yndislegur dagur sem ég átti í gær. Fyrir utan yndislegan hversdagsleikan sem umlukti allt og alla, fékk ég þessa himnasendingu í pósti. Íslenski Bachelorinn mættur til France. Nú þarf ég bara að redda mér videotæki til að geta horft á þetta og fengið ofur öfga kjánahroll yfir hryllingnum. Ótrúlegt hvað það getur verið gefandi fyrir mann að hneykslast á öðru fólki. Haha aahh.. ég allavega hakkalakka kakkalakka hlakka til! Una mín.. mörsei bjúkúp (eins og kaninn segir), ég dáist að þér fyrir þennan pakka, hann var guðdómlegur. Ég komst hálfa leið til himnaríkis þegar ég var að skoða allan þennan sora.. og enn á ég eftir að lesa þessar þrjár síður af séð og heyrt bröndurunum.. þegar það er búið get ég væntanlega tekið í spaðann á guði! Ekki nóg með þetta heldur fékk ég líka jússukort og ömmubréf. Hjartað í mér var við það að springa, ég get svo svarið það. Kærleikur útum allt og allstaðar!
Jájá.. ég var eins og áður sagði í æsifréttum að passa um helgina. Gríðarleg stemmning bæði föstudags og laugardagskvöld. Þó náði ég að gellast með Maju í Cannes og hafði ég og mannmergðin virkilega gott af því. Leiðindi að þurfa að dissa liðið svona æ ofan í æ. Maja var síðan svo elskuleg að passa gemlingana með mér á laugardagskvöldið.. kompaní er alltaf af hinu góða. En þess má til gamans geta að Maja er nýja au pair stelpan hjá minni fyrrverandi fjölskyldu. Það er eitthvað krúttlegt við þetta allt saman, komískt og kaldhæðið. En hún er frábær stelpa þannig að mér líður afspyrnu vel að vita af því að þau fengu ekki einhverja pokarottu til að kljást við The boys (sem er einmitt fyrrum uppáhaldshljómsveitin mín, og að sjálfsögðu er Rúnar fyrrum eiginmaður minn á laun). Við semsé erum saman í frönskuskóla og mestu mátar.
Hápunkti helgarinnar var klárlega náð þegar við stöllur stóðum úti á einum hektaranum af mörgum í garðinum og hrisstum kú. Já við stóðum þarna jafn jússulegar og við erum og burstuðum belju. Ég fer ekkert nánar út í þetta held ég. En dularfullir hlutir eru að eiga sér stað.


<< Home