mánudagur, desember 12, 2005

Joooólin joooólin aaaalstaðar! Já ég er ekki frá því að jólin séu alstaðar. Líka hér í South of France. Nú tengja menn jólin við snjó og jólatré og ýmislegt þess háttar.. hér er ekki mikið um þessa jólahluti steríótýpu jólanna. En Frakkar deyja ekki ráðalausir! Þeir planta bara jólatrjám á víð og dreif hér um ströndina á milli pálmanna. Frussa á þau froðu eða kæfa þau í einhverjum bómul. Töff. Ýmislegt er nú gert. Ég get ekki sagt að mér finnist það vera að dansa. Eeen allt í lagi. Þeir fá hinsvegar prik fyrir ljósaskreytingarnar þær eru yfirleitt mjög fallegar. Valbonne dansar til dæmis ballett hvað það varðar. Stórgott, fallegt og jólarómantíkin svífur þar yfir vötnum. Roquefort Les Pins (bærinn minn, eða gatan eins og ég kýs fremur að kalla hann) hefði aftur á móti mátt hugsa þetta aðeins betur. Slöngurnar eru ekki töff á glerártorgi.. en að hengja þær upp í tré eins og einhverjar horræmur á halloween.. halló góðan daginn hvað gerðist hér?! Út með slöngurnar þær eru ekki heitar lengur. Nú er ég farin að fíla mig eins og einhvern prumpandi gagnrýnanda þannig að ég ætla yfir í aðra sálma.

Jólaandinn greip mig í síðustu viku og hann heldur á mér enn. Við Anna erum búnar að baka 4 sortir og gera karamellu.. og allt er þetta gert með barn á armi. Allt geri ég reyndar með barn á armi. Finnst ég vera ekta jússa þessa dagana.. strauja með barn á armi, baka með barn á armi, ryksuga með barn á armi og ég veit ekki hvað og hvað. Það er voða kósý bara. Ég hugsa að ég eigi eftir að sakna þessarar fjölskyldu um jólin. Ég er búin að eiga svo mikið af kvolitítæm með krökkunum upp á síðkastið að það er alveg yndislegt. Pælingarnar hjá þeim eru frábærar. Við Rökkvi vorum að skoða brúðkaupsmyndir um daginn.. og hann var alveg á kafi í þessu öllu. Benti á mynd af mömmu sinni og afa sínum þar sem Anna stóð prúðbúin í brúðarkjólnum.. reddí til að fara í kirkjuna og láta pússa sig saman við sinn ektamann.. og sagði: þarna er mamma að giftast afa. Jaaaaaá neinei.. hmmm. Svo var Elfar á annari mynd að giftast frænda sínum sem var raunverulega svaramaðurinn og svo mætti Guð sjálfur til að sjá um athöfnina. Ekki ómerkilegt það!

Helgin var góð. Ég fór og sá Ugga syngja frönsk jólalög með skólakórnum. Ofurkrúttlegt! Heimsótti jólamarkað í Mougins og svo áttum við Maya fáránlegt laugardagskvöld sem við erum búnar að hlægja mikið af. Við enduðum á einhverjum hommabar í Antibes þar sem fólk var svona voðalega mis eitthvað.. of mikið had to be there til þess að ég fari að koma með góða sögu af því. Svo áttum við rómantíska stund saman seinni partinn í gær þar sem við gengum fram á tívolí inn í Nice. Lítið og voða huggulegt.. þar var búið að skella upp svelli í sólinni og fólk gat farið á skauta og fleira skemmtilegt. Við létum duga að þeysast nokkra hringi í parísarhjólinu. Það vantaði bara stjörnurnar og þá hefði þetta verið eins og í bíómynd. Alla malla.. meira verður það ekki í bili.

Ást og angan af gurmand jólum..

Lilý