miðvikudagur, febrúar 01, 2006

..og netið kom í dag. Hvílík gleði. Mætti halda að maður væri háður þessari vitleysu. Mér finnst alltaf jafn fáránlegt að segja maður þegar ég tala um sjálfa mig í 3. persónu.. hljómar bara ennþá fáránlegra að segja kona í staðinn.. æjégveitþaðekki.

Rökkvi var lasinn í dag þannig að við vorum bara að dandalast hérna heima í kósí gírnum. Leiruðum Madagaskarland og hvaðeina.. ég stóð mig framar vonum og gerði sebrahestinn eins og ég hefði skapað hann sjálf (hóst). Rökkvi kenndi mér líka nýtt lag sem hann lærði í skólanum. Ó rass.. ememineneneni.. ó rass.. ememineneneni.. ójá og það skemmtilegasta við það er að þetta er klárlega gamli smellurinn our house in the middle of the street í nýjum búningi. 4 ára guttinn sem var farinn að spjara sig á frönskunni eftir 4 mánuði í Frakklandi eitthvað aðeins að misskilja enskuna á fyrstu vikunni. Tað er allveg hillaríus að hlusta á þá bræður syngja saman við matarborðið eitthvað sem þeir halda að séu orð og oftar en ekki verður það að einhverju sem maður kannast við úr íslensku tungunni. Þá gjarnan eitthvað sem þeim finnst fyndið og sniðugt.. rass.

Talandi um rassa.. Anna og Elfar eru búin að vera að skoða hús hérna á svæðinu og ollabolla.. Anna fann eitt sem henni líkaði rosalega vel. Fallegt að utan með stórum garði.. fínt eldhús.. þið vitið allur pakkinn bara. Nei.. gatan heitir Bryants Bottom. Hressandi að búa ekki einungis útí endaþarmi miðað við London center heldur líka í rassinum á Bryant.