sunnudagur, janúar 08, 2006

Jæja smá færsla hérna á hinn kantinn.. Ég ætla að byrja á því að óska fólki til hamingju með nýja árið. Alltaf gott með nýjungar. Nýtt og betra ár að í gjúggíborg fíling. Ég er eitthvað voðalega bjartsýn og opin fyrir þessu ári. Vona að það sé almennt viðhorf fólks. Á ekki von á öðru. Engin ástæða til annars en að vera bjartsýn og brosandi. Jeij!

Kanarí var soltid twisted, menningin a eyjunni ekkert spes svo ég fari nú fínt í það, en yndislegur félagsskapur og frábært veður. Fjölskyldan og fleiri tóku því vel.. með hlátrasköllum og einhverjir slógu sér á lær.. þegar þau sáu að það var jólasveinn sem beið þeirra á flugvellinum. Jólasveinn sem hafði keypt sér nýjan búning fyrir jólin í Auchan á 3 evrur og ferðast frá Frakklandi með flugvél því hreindýrin voru timbruð. Börnin voru alsátt með jóla og annað hvort veifuðu feimnislega eða misstu það í kampakátínu og settu klístruð handarför á glerið þar sem ég stóð hinumegin með rauðann nebba og bómullarskegg. 15 minutes of fame! :D

Hressandi upplifun að sofa í hjónarúmi með litlubræðrum mínum sem eru báðir orðnir stærri en ég og guð og menn vita að þeir eru orðnir sterkari en ég líka.. hallelúja! Mér hefndist fyrir að kitla þá meðan þeir réðu ekki enn við mig. Maður þurfti að taka gribbuna á þetta á endanum bara.. eins gott að hún sé enn til staðar.

Þegar ég kom til Frakklands aftur beið mín móðir með þrjú börn og hund.. guðslifandi feginn að fá mig aftur. Hundurinn og eitt barnið tóku á móti mér með því að kúka á sig.. hressandi. Einhverra hluta vegna fannst mér það einungis heimilislegt og mér leið ljómandi vel að vera komin aftur. Engin yfirborðskennd, bara ást með öllu :)

Núna er Heidi hjá mér.. og guði sé lof. Elfar og Anna skruppi nefnilega til London á Laugardaginn og við erum hér með börnin.. nema hvað að ég tók upp á því að fé einhverja ógeðins pest aðfaranótt laugardags og gerði lítið annað en að æla með munninum og eins og Rökkvi segjir, gubba með rassinum. Góð lýsing á niðurgangi frá fjögurra ára gutta. En semsagt.. fremur óskemmtilegt og ég var eins og undin tuska á laugardaginn með hita og ekkert í mallanum. Svo Heiðrún kom sterk inn og bjargaði deginum fyrir mér og ferðinni fyrir Elfari og Önnu. Hipp hipp húrra fyrir Heidi!

Í dag fórum við svo með allt stóðið á Mc'donalds. Ef það er ekki geggjað stuð þegar maður er 4 og 6 ára þá veit ég ekki hvað er kallað stuð. En við náttúrulega tókum hundinn með eins og er jú siður okkar Frakka að gera. Ég virkilega beitti mér að því að vona að hundurinn gerði ekkert ósiðlegt á gólfið.. og ég er farin að hafa trú á sambandi mínu við hundinn án þess að ég segji neitt. Hann hélt gólfinu hreinu allan tímann var hinn þægasti. Eða hún eins og það er víst, þó ég kjósi að kalla hana hund. Ég komst líka að því að ef ég hefði áhuga á því að ná mér í einhvern franskan gúmmítöffara þá væri það pís of keik með hundinn með sér. Fólk hreinlega spurði hvort hann mætti sleikja á þeim hendurnar og eeeööhh afgreiðslugellan kom að borðinu okkar og lét hann sleikja sig alla í bak og fyrir. Veeeeeðbjóður.is/gjörðusvovelhérnaerhamborgarinnþinn+sýklarúrdýrisemsleikirásérrassinn/verðiþéraðgóðu.

Glansandi glansandi.. ég fékk glansandi hugmynd um daginn, með hjálp Beg að vísu. Ég verð bara heima í sumar. Ég held það sé best fyrir alla. Get ekki sætt mig við það að vera í burtu í ár.. koma heim í tvær þrjár vikur og fara svo bara burt í nokkur ár í viðbót. Nei þá vil ég frekar vera heima í sumar.. sinna íslenskum ellismellum heldur en saenskum. Eða þjóna túristum sem dást að Íslandi fremur en einhverju öðru.. Ísland JÁ TAKK! Ég er strax farin að hlakka til að fara á ættarmót, berjamó á Kóngstaði og kósý útilegur með íslenskt kjarr allt í kring.. mmm mmm mmm. Ahh sátt með þessa ákvörðun.

Þá er þetta orðið allt of langt að sinni. Þangað til næst.

Ást og kossar
Lilý