Hey hó (let's go!)
Það virðist sem það sé allt að þessu húsi sem við búum í núna. Hér streymir inn fólk lon og don (london?) eins og það fái borgað fyrir það (sem það gerir eflaust). Fólkið er í misjöfnum erindagjörðum. Um daginn kom hér kerla sem taldi upp allt sem við henni blasti. Gólflista, skrúfur í gólflistum, skemmdir á gólflistum og hún fór niðrí svona smáatriði á öllu sem hún sá. Skemmtileg vinna? Nú hafa komið hingað þrír iðnaðarmenn í heimsókn, í misjöfnum erindagjörðum. Tveir af þessum þremur iðnaðarmönnum fylltu upp í ímyndina og vel það. Einn var pípari og gat að sjálfögðu ekki hamið eðlið þó hann vildi það bersýnilega.. með belti og hvaðeina.. en litli kútur karlsson læddist uppúr engu að síður. Annar var Security gaur, vænn í vexti og algjörlega blokkeraður á líkamlega umhirðu og böðun.. svitalyktareyðir.. ekki til í orðaforðanum. Snæfríður setti það þó ekki fyrir sig og daðraði duglega við hann, tók sína alkunnu mjaðmahnykki og guð veit hvað. En ég sá ekki bara boruna á honum blessuðum, heldur blasti við mér botninn á honum eins og hann lagði sig. Heldur ófögur sjón það. Sá þriðju kunni að girða sig.. hann var gardínugaur.. og telst því varla iðnaðarmaður. Iðnaðarmennirnir eru að standa sig vel í dag. Mér finnst nú alveg spurning um að benda fólki á að sýna ekki of mikið af sjálfum sér og sínum óæðri stöðum áður en það veður hálf berrassað inn í heimahús. Og það hér í Woodlands Drive number five.. þetta sneri náttúrulega öðruvísi við manni ef við værum í Bryants Bottom.. þá tilheyrði það bara þemanu.


<< Home