föstudagur, febrúar 03, 2006

Mér þykir tilefni til þess að óska frönsku póstþjónustunni innilega til hamingju með ótrúlegan árangur. Hver hefði átt von á því að geta sent jólagjafir frá Frakklandi til Íslands og að þær myndu skila sér?! Haaaa.. fyrir utan hvað þeir eru snöggir að þessu, góðan daginn bara hátt í tvo mánuði. Þvílíkur munaður að hafa aðgang að svona þjónustu ég segji nú ekki annað. Ég allavega er í skýjunum yfir því að pakkarnir hafi skilað sér þó jólin séu löngu búið og vorið á næsta leiti. Good good.

Ef það er eitthvað í heiminum sem ég virkilega hata, þá er það morðtólið mitt tætarinn sem gegnir því hlutverki að reyta af manni líkamshárin. Þvílík ógeðisvél! Ég læt það vera að ég látist þegar hann ræðst með ofsa á lappirnar á mér en þegar hann læðist með slóttugt glottið undir handakrikan þá er eins og lungun í mér falli saman og húðinni sé flett af mér. Og þetta leggur maður á sig til þess að verða mjúkur sem kúkur (gott orðtak Siggeir). Mikið vildi ég að það væri kósý að hafa hár, en það er það bara ekki.. sorgleg staðreynd sem hrellir nútímakonuna.

Blogg á dag kemur skapinu í lag.. það mætti orða það þannig að ég sé búin að vera að hlúa að fráhvarfseinkennum netleysis síðustu vikna (þrjú að í einni setningu).

Fékk skemmtilegt sms frá Lilz áðan.. minnti mig á hvað það er gaman að skoða gamlar dagbókarfærslur. Fyrir ári síðan vorum við ógó fyndnar inní kompu að undirbúa öskudaginn.. ekki það að þetta sé góð saga fyrir utanaðkomandi aðila en ó boy good times!

Ó well.. þá held ég út á vit ævintýranna með öðrum sveitalubbum frá Æslandi.

XXX