Ég er enganvegin í stuði til að skrifa eitt né neitt.. hef ekki verið það og er það ekki. Skil ekki hvernig stendur á þessu, en ég geri það samt því ég er komin með ógeð á því að sjá alltaf smettið á henni marge þegar ég kem hingað inn, þó hún geti nú verið ágæt blessunin.
Ísland var svo unaðslegt.. ég gæti bloggað um margt og mikið sem gerðist þar en ætla að mestu að láta það eiga sig. Við vorum þar í 2 vikur og ég fór norður í 6 daga. Fór á Hjálma í Sjallanum (sem er alltaf nákvæmlega eins, sama fólkið, sama andrúmsloftið og sama ógeðislyktin) Hjálmar voru dúndur eins og endranær og Lilja og Kristjana voru hreinn unaður. Gaman og gott að hitta alla ma-ingana.. ó boj, ma. Best að hitta Lilju. Mér tókst án vandræða að stúta heilu páskaeggi.. róaði samviskuna og fór út að hlaupa með óskari, átti að sjálfsögðu ekkert í hann, en ég svitnaði eins og ófreskja.. og það var markimiðið. Horfði heil ósköp á The Green Wing (sem eru einhverjir fyndnustu þættir sem ég veit um, ég gaf ásgeiri fyrstu seríu í ammælisgjöf(sjálfselskugjöfégveitþaðekki)) og hló af mér rassinn. Sakna hans pínu þó hann geti verið ansi fyrirferðamikill oft og tíðum. Mútter ákvað að koma til mín þegar ég hætti og við verðum þrjár nætur í London saman. Sjopping og amjúsment túr, unaður. Svo í lokin þá tókst mér næstum því að kveikja í íbúðinni hjá Emma og beg.. fer ekki nánar útí það hér. Ég er fíbl, það eitt er víst.
Að fara út aftur vitandi að það eru bara 6 vikur eftir var undarlegt. Nú á ég bókað flug heim þann 5. júní og hætti hérna 2. júní. Undarlegt er það, ég hlakka til að koma heim.. alveg óendanlega, sé sumarið í hillingum. En að sama skapi kvíði ég því að fara og sakna. Það verður allt svo óraunverulegt þegar maður hugsar útí svona hluti.
Hér er sólin farin að skína og fuglarnir syngja hástöfum. Það er ótrúlegt hvað allt verður skemmtilegra þegar sólin skín. Í gær fór ég á markaðinn í Camden, klædd í hlírabol og pils (engar sokkabuxur).. það var svo hlýtt úti og svo góð sumarlykt í loftinu að ég valhoppaði ósjálfrátt útúr lestinni með the flaming lips í eyrunum.. yoshimi battles the pink robots pt. 1.. sumarhumar :)
Ég elska vorið því þá hverfur horið


<< Home