Ísland á morgun bara.. haaaa. Svo gott svo gott. Mér er sama þó þar sé skítakuldi og hér sé sól, ég hlakka óendanlega óendanlega mikið til (tvöfaldur óendanleiki er meiri en margan grunar) að spranga um götur borgarinnar (og bæjarins) sperrt eins og antilópa, kyssa alla sem ég hitti í kaf og fara í sund. Hlakka til að fara í sund. Váts hvað það er langt síðan ég fór í almennilegt sund! VÓ! Nei ok.. það var reyndar í febrúar.. en það var ekki almennilegt. Engan veginn.
Í dag er gott að eiga pund börnin góð, nei ekki hund.. pund sagði ég! Aumingja íslenska krónan er klárlega með kvef.. spurning hvort það verði þrálátt. Útlitið er ekki gott, grýlukerti á norðurlandi eystra. Suðvestan 5-10 m/s og stöku él. Vestan 8-15 m/s seint í nótt, hvassast norðantil, en norðan 13-20 snjókoma annað kvöld. Kólnandi, frost 1 til 5 stig á morgun. Spá gerð 04.04.2006 kl. 21:46 (tekið af www.vedur.is) Sounds like a brrrr to me! (svöl)
Nú er ég búin að pakka. Byrjaði eftir hádegi í dag.. og ég er alveg sjor á því án þess þó að vera með hor.. að ég er með rúm 40 kíló. Fínt Lilý. Nú erum við 6 að ferðast og fimm okkar eru með sæti í flugvélinni. Sem þýðir 100 kíló á familíuna. Nú hafa glöggir gert sér grein fyrir því að au pair pían er að nýta allt að helminginn af þeirri þyngd. Spurning hversu fáránlegt það er.. Ég þakka guði fyrir að fólkið mitt hérna hafi húmor fyrir þessu. Góð tilfinning að heyra þau hlægja að mér. Guði sé lof.. og dýrð! Gott líka að það sé þvottavél í Óðinsgötunni og það verði hægt að þvo af börnunum og öðrum. Annars hefði ég ekki ráðrúm til að taka svona mikið með, og þyrfti þá að kosta það með pósti. Hvílíkur kleppur sem allt þetta dót er............. (fyrir þig Sólveig) Jesús minn góður! Svo er það saumavélin.. ætlaði að taka hana í handfarangri en varð skyndilega svartsýn á að hún kæmist í hólfið fyrir ofan mig, svo hún fer að öllum líkindum með pósti.. skipapósti. Gott að eiga góða saumavél. Gott að láta senda sér hana og gardínuefni til Frakklands. Um að gera. Gaman að þessu saumeríi, skemmtilegt. Frábært hvað ég er búin að sauma mikið, gefandi saumaskapur. Held það sé vel við hæfi að enda þessa færslu á hamingjuóskum til mín.. sjálfrar mín. Mín Lilýar (baglady) Adamsdóttur. Til hamingju.


<< Home