Ég er ánægð með styrk minn þessa dagana. Ég er búin að kveðja the good old goldies svo oft að ég er hætt að grenja í öxlina á þeim.. sjálfsstjórnin er svo mikil að ég get geymt það þangað til ég kem heim. Þoli ekki að kveðja, það er án vafa það alleiðinlegasta sem ég geri. En það er ekki langt í påskeferien, guði sé lof.
Kvöldið í gær var svo ótrúlega gott. Ég hef ekki skemmt mér jafn vel svo lengi. Enda eruð þið langlang bestar stelpur. Jesús hvað ég elska ykkur mikið. Ég veit að þetta hljómar ískyggilega eins og ég sé 14 að springa úr gelgju en svo er ekki, mér finnst bara allt í lagi að rita það hér niður að það eru engar eins og þið! Gull gull gull. Þetta hefði verið fullkomnað ef Helly hangover hefði verið með okkur, en það bíður þangað til í sumar. Sumar. Vá ég fæ gæsahúð þegar ég hugsa um þetta sumar.
Það var samt sem áður allright að koma aftur, því hér er gott að vera. Börnene voru gået i seng, en Rökkvi beibí bjútífúll kom niður þegar ég steig inn fyrir dyrnar og smellti einum á mig. Södelíus.. hlakka til að sjá hann á morgun. Uggi varð skyndilega ótrúlega þyrstur og ég færði honum vatn. Hann sötraði það þar sem hann sat í rúminu sínu með vettlinga og sagði mér hvað hann hafði borðað í dag. Hann fékk einn rembing á ennið. Snæfríður fór eitthvað að ummla þannig að ég gaf mér ástæðu til að fara og smella einum kossi á hana líka. Svo kyssti ég Önnu og Elfar.. þannig að það var enginn útundan. Er búin að kyssa endalaust marga í dag. Svo ég tali nú ekki um alla sem ég kyssti meðan ég var á Íslandi, mætti kalla þetta kossamaraþonferð.. Gott fyrir sálina.. er að spá í að kyssa sjálfa mig til hamingju með það.
:*


<< Home