Svo þreytt, svo ótrúlega þreytt.
Já Ítalía var æðisleg.. við vorum í viku í Madonna og skíðuðum af okkur lappirnar. Gistum eina nótt í Verona og þangað verð ég að koma aftur. Að degi til með einhverjum sykursætum sem er til í að þramma með mér um þröngar götur, slafra í sig ís og fara í opna óperu. Vá ég rétt sá í skottið á henni og ég verð að sjá meira. Mmm mmm mmm, og pítsan sem ég fékk mér.. jere, hún slóg öllum öðrum út.
En til þess að geta notið vikunar til hins ítrasta urðum við jú eins og gefur að skilja að koma okkur á staðinn. Það gerðum við með miklu mausi.
Við tókum leigubíl útá Heathrow, vorum rétt komnar á hraðbrautina þegar við föttuðum að kuldaskórnir hennar Snæfríðar voru heima. Kemur.. við hugsuðum: ahh við förum í svo margar fríhafnir í dag að við reddum því nú auðveldlega. RANGT.
Við mættum á völlinn með góðum 2 og hálfs tíma fyrirvara. Sem betur fer því að miðarnir okkar voru bókaðir á netinu og þeir sendir til Íslands en ekki Bretlands. Þannig að það þurfti að punga út dágóðri summu fyrir það eitt að láta prenta út nýja miða. Æði. Það tók tvo tíma að rausa við sveppina við Lufthansa deskið. Þá áttum við hálftíma eftir og hann fór allur að undanskildum fimm mínútum í það að tékka okkur inn. Vegna þess að félaginn hjá Lufthansa hafði þá prentað út eitthvað vitlausa miða. Svo það varð að prenta nýja.. þurftum ekkert að borga fyrir það :o
Á fimm mínútum marseruðum við Anna með börnin þrjú að Gate-inu okkar, í fylgd einhvers manns sem þekkti flugvöllinn eins og handarbakið á sér. Hressandi flugferð til Frankfurt, fengum ost að borða í flugvélinni og einhverjar brauðskorpur. En oststykkið var á stærð við múrstein.
Millilending í Frankfurt, hresst.. keyptum saltstangir, fundum gate-ið, Anna keypti kaffi og á meðan helltust saltstangirnar útum allt og við vorum kölluð upp með nafni og beðin um að tuska okkur út í vél. Air Dolomiti (partner of Lufthansa) var skömminni skárri, strákarnir fengu litabækur og höfðu eitthvað við að vera.. en þeir serveruðu samt sem áður ost með kexi sem minnti óneitanlega á lambaspörð. Frá Frankfurt komumst við svo til Verona þar sem Elfar beið okkar.. og var búinn að gera það í einhverja klukkutíma. (Hann flaug til Nice og keyrði þaðan með skíðin til Verona). Við tók 3 tíma akstur til Madonna. Svo mikill farangur var um borð í bílnum að við þurftum að sitja fjögur í sætum fyrir þrjá.. ein í barnastól. Þröngt á þingi.
Á leiðinni til baka var ákveðið að vera vitur og við keyrðum til Verona daginn fyrir flug þar sem flugið okkar var eldsnemma um morguninn og við hefðum þurft að vakna klukkan þrjú um nóttina ef við hefðum ætlað að fara beint frá Madonna. Við vöknuðum í staðinn klukkan korter í 6 í mjúkum rúmum á hóteli í Verona og fórum útá flugvöll.
Þegar þangað var komið uppgötvuðum við að ég hafði steingleymt töskunnu minni á hótelinu. Kemur. Svo var okkur sagt að flugvélin sem við ætluðum að taka til Frankfurt (góður staður Frankfurt) hafi ekki getað lent í Verona í kvöldinu áður vegna þoku, þannig að við yrðum að keyra á flugvöllinn hjá Feneyjum þar sem hún lenti. HEHEY! Ójá dönsum! 1 og hálfur tími í rútu með fullt af sveittu fólki og jújú.. þrjú börn upp á arminn. Við komumst upp í Air Dolomiti (partner of Lufthansa) vélina okkar og flugum af stað. Rútuferðin gerði það þó að verkum að við komum jú mun seinna en áætlað var til Frankfurt og misstum af fluginu sem við áttum til London. Afsakið meðan ég græt með hljóðum. Transit röð beið okkar í Frankfurt og hún var löng. Lufthansa, eða loftið úr Hansa eins og ég kýs að kalla það óheilla félag, var með 6 transit desk en bara eitt opið. Klappiklapp. Þar stóðum við í klukkutíma. Hipp hipp húrra! Fengum loks flug til London klukkan 15.00. Guðs lifandi fegnar að komast bara samdægurs. Í millitíðinni heyrðum við í Elfari og það var klukkutíma seinkun á fluginu hans og hann þurfti að borga himinháa upphæð í yfirvigt útaf töskunni minni. Arg. Við flugum til London og tókum leigubíl heim til Beaconsfield sem kostaði 70 pund takk fyrir túkall. Um leið og við komum heim fór Anna af stað að sækja Elfar á Gatwick, bíllinn varð næstum því bensínlaus á leiðinni og hún rétt náði að hikksta inn á einhverja stöð. Þegar hún kom á völlinn voru svo símarnir þeirra beggja batteríslausir og þau fundu ekki hvort annað fyrr en seint og um síðar meir. Börnin voru fegin að fara í bað og fá að borða.. og ég mun fara ólýsanlega fegin í rúmið eftir 5 mínútur.
Ég veit ekki hvað var mest svekkjandi við þetta allt. Sennilega samt að það var vel hægt að fá beint flug frá London til Verona en ég meina.. hverjum langar ekki að skreppa til Frankfurt í leiðinni ef hann hefur kost á því og sýna öllum ungunum þremur gráa flugvöllinn þar.
Ýmislegt var þó vel þess virði að hlægja að. Athyglin er ekki alveg uppá það besta þegar maður er með hugann við að koma sér á milli landa og að passa uppá að allir komist með í sæmilega heilu lagi. Snæfríður gerði sér lítið fyrir og kúkaði á sig á flugvellinum hjá Feneyjum, þar skipti ég á henni.. fann hvergi rusladall þannig að ég smellti kúkableyjunni undir kerruna. Hún kom með alla leið til London.
Einhvertíman þegar Anna hefur verið að tala í símann batt Rökkvi húllahúbba bangsan með langa skottið aftan í kápuna hennar og þar dinglaði hann lengi vel alsáttur. Í vélinni lágum við alltaf undir grun ef einhver leysti vind.. aumingja Snæfríður kúkaði ekkert alla leiðina. Hún sofnaði heldur ekkert alla leiðina. Vaknaði klukkan korter í 6 og var í stuuuuði í vélUNUM. Þanndi lungun og lét í sér heyra. Hver er maðurinn var leikinn ófáum sinnum. Rökkvi er mjög góður í þeim leik. Hann valdi sér "mann".
Elfar: Er þetta dýr?
Rökkvi: Já
Rökkvi: Ok, ég skal gefa ykkur vísbendingu.. hún er brún og hvít og byrjar á Grím..
Uggi: Gríma?!
Rökkvi: oooooh hvernig vissirðu?
Jæja.. ég biðst afsökunar á þessari færslu, varð bara að koma þess frá mér. Þessi flugferð toppar allar mínar fyrri flugferðir, það er alveg á tæru.


<< Home