Mér leiðist ekki og ég hef það fínt.
Ótrúlegt hvað internetið getur verið lúmskt. Öðrum eins tímaþjófi hef ég aldrei á ævinni kynnst. Ég fatta það alltaf klukkan hálf tvö að ég sé ennþá á netinu og yfirleitt ekki að gera neitt af viti. Kjánalegt. Þarf að fara að hengja upp internet reglur.. sem ég þarf þá að búa til. Geri það á morgun (segir sá lati). En eins mikið og ég þoli ekki netfíkn mína þá elska ég skype. Ég eeeeelska skype. Að geta hringt heim í einhvern sem þekkir mann svo vel og maður þekkir svo vel og bara röflað á milli landa. Frítt. :) Frábært! Ég var einmitt að tala við Lilju áðan, mikið var það gott. Hlakka til sumarsins. Búandi með Lilju í íbúð þar sem klósettið er titlað merkilegra en margt annað og haft útá miðju gólfi á baðherberginu, uppá palli. Mér líst vel á þetta.. ætla að umkringja það andrésblöðum og gömlum tröllasögum (elf). Ég verð að vinna á Bautanum já, fékk staðfestingu á því í dag. Það verður vafalaust hressandi.
Á morgun er það svo bara Ítalía. Skíði í viku.. draumur í dós! Ég finn það að fiðringurinn magnaðist þegar ég skrifaði þetta. Ég held ég hlakki bara til. Mikið. Mjög mikið! Vóóóó Mjööög mikið!! Ég var einmitt að skoða myndirnar hennar Andreu á netinu um daginn (klukkan hefur þá sennilega verið farin að nálgast hálf tvö), frá Sölden, jeminn eini hvað það er fallegt þarna hjá þeim. Minnti mig á hvað mér finnst unaðslegt að svífa niður brekkurnar og finna hvernig dramatískt frelsið fyllir mig. Þetta er svipað og að fara í berjamó, maður er svo einn með sjálfum sér og náttúrunni. Að fara í berjamó og á skíði bætir og kætir :) Fyrir utan allan þann góða mat, glens, gaman og góða fólk.. sem mun vera með í för til Ítalíu. Vika verður það.. kannski ég læknist þá af þessari netsýki. Það væri nú óskandi.
Smá svona íslenskt hérna í lokin.. ég er að koma heim :D Í fimm daga doktor! Frá miðvikudeginum 1.mars til sunnudagsins 5.mars.. þannig að fólk ætti að fara að safna í grísinn fyrir farinu suður ef það á annað borð ætlar að berja mig augum og fá rembing :) Ég er farin að hlakka jafn mikið til þess og ég hlakkaði til jólanna þegar ég var lítil. Eeeen svo var ég að heyra því fleygt fram í dag að stefnan væri tekin á Ísland also í påskeferien. Þannig að maður verður með annan fótinn á klakanum fram á vor og þangað til að maður kemur heim í sumar. Ekkert nema gott um það að segja. Nema það breytist það getur líka vel verið.. maður hefur jú heyrt Karabískahafið, Saudi-Arabíu og Suður-Frakkland nefnt í þessu samhengi.. kannski endum við bara í Langtíburtistan, það væri það þá!
En þetter nú orðið ágætt haaa.. klukkan orðin eitt og Óli er farinn að pikka í mig.
Kossar og fleiri kossar
Lilý


<< Home