Eljú-ú-úft!
Það er eitthvað við það að sjá litla gráa Ísland birtast í gluggum flugvélarinnar, ég tárast alltaf og langar að klappa frá mér allt vit. Rembist þó við að halda kúlinu, sýg uppí nefið og sleppi því að klappa. Gordon Blueið hjá Icelandair klikkar ekki.. ótrúlegur matur. Maður bíður alltaf með öndina í hálsunum eftir því að sjá hvað þeir hafi töfrað fram og alltaf alltaf koma þeir aftan að manni og segja bö með því að slengja Gordon fyrir framan nefið á manni. Nú er ég hætt að reikna með því að þeir muni nokkur tíma breyta þessu.
Nú eru búnir tveir og hálfur dagur og ég er stödd á Akureyri. Elmar Geir og Bergþóra búálfar í Eggertsgötunni tóku á móti mér með veislu og var Elfa aðal númerið þar. Faxe kondi, grænmetislasagnette að hætti Sollu á Grænum kosti, ótrúlegur tvöfaldur eftirréttur og síðbúin jólagjöf sem mun koma sér vel fyrir páskana - diskurinn Jólin koma.. allt þetta og meira til. Já nei ég átti ekki til orð, og svo fékk ég tvíbreiða dýnu til að sofa á líka! Eins og á fimm stjörnu hóteli!
Gettu Betur var á fimmtudaginn og þar áttust við lið MA og MR. Það var að sjálfsögðu rífandi stemmari í liðinu eins og endranær. Sigurður Helgi brást ekki sínu fólki og hvatti menn áfram eins og hann ætti lífið að leysa. Það skilaði líka sínu hjá stuðningsliðinu því þau örguðu eins og apakettir. MA vann þetta eftir ógleymanlega keppni sem vissulega var magnþrungin spennu. Svekkjandi tap fyrir MRinga.. ég fann til með þeim. Ótrúlega svekkjandi fljótfærni. En bæði liðin áttu sigurinn skilið þannig að þetta var heppni MAinga í óheppni MRinga og maður brosti og hló :) Skondin tilfinning að sitja aftast í salnum með svona netta áhorfenda tilfinningu í maganum.
Maður er ekki í Menntaskólanum lengur, en maður er sannarlega MAingur ennþá og það verður maður alltaf.
Ég verð að koma því að að ég sá líka nakinn mann hlaupa upp Laugarveginn með hvatningarlið á eftir sér.. afar súr sjón og ég geri mér ekki alveg grein fyrir tilgangi ferðalagsins. En svona er Ísland í dag.
Í dag smellti ég mér svo norður í smá heimsókn í foreldrahúsin. Er búin að afreka að hitta Lilju í mýflugumynd.. reka inn nefið hjá Evu Ósk í spjall.. hitta ömmu og afa, Dísu, Óla og stelpurnar.. á eftir er það Anna og á morgun Jóna Lísa skvísa og önnur nebbaheimsókn til Dísu :) Þá er það Reykjavík beibí klukkan þrjú. Það er hiti í þessu, það er ekki hægt að segja annað!
En ó hve ljúft þetta hefur verið. Það er svo gott að hitta allt þetta gamla gullna lið. Vildi að ég gæti gert það aðra hverja helgi.


<< Home