
Í gær gerði ég eitt sem ég hélt ég myndi aldrei aldrei koma til með að gera. En ég gerði það samt.. og það var spes. Ég var loner loneranna og fór alein í bíó. Maður á náttárulega ekki að segja frá svona löguðu. Mér fannst þetta samt frekar hetjulegt og klappaði sjálfri mér á öxlina. En ekki nóg með það, heldur var ág lengi vel alein inní salnum. Svo kom reyndar eitthvað lið allir saman eitthvað með einhverjum piff. Ég hefði auðvitað getað boðið einuverjum rónanum í bíó. Ég labbaði framhjá þeim allnokkrum en ég sleppti því. Hefði kannski átt að gera það og þykjast vera með liðveislu eða eitthvað en æji ég ákvað bara að feisa sorglegheitin. Svo velti ég því fyrir mér í smástund hvort ég ætti að telja sjálfri mér trú um að þetta væri í rauninni bara rokorknar töff en ég hætti við, sá að það væri bara hardcore sjálfsblekking. Það versta var að myndin var ekki einu sinni það góð að þetta væri á sig leggjandi. Ég sá Memories of a Geisha sem átti sín móment en var ekkert stórkostleg. En ég borðaði mikið popp, það er nú alltaf eitthvað.
Þar sem ég labbaði ein um göturnar þarna í gær gekk ég fram hjá einum og einum betlaranum. En það var eitt sem stakk mig í augun. Ég gekk eina götuna framhjá manni sem sat undir grænum svefnpoka og reykti sígarettu. Í fyrstu hugsaði ég jájá félagi um að gera að reykja frá sér það sem þú nærð að betla. Svo gekk ég áfram bara og fór að hugsa um hvort ég ætti virkilega að fara ein í bíó. Þegar ég ákvað að fara svo í bíó sneri ég við og labbaði til baka, þá búin að fara aðeins á internet cafe og geifla mig í webcam.. hlægja að því að ég sagði hor gaurinn í staðinn fyrir hör gaurinn af því að lyklaborðið bauð ekki upp á ö.. og heyra einn tvo kúkabrandara hjá óskari. Neinei.. ég geng framhjá staðnum sem hann sat á blessaður betlarareykháfurinn og þá var komin í staðinn fyrir hann kona. Hún sat í sama svefnpokanum á sama staðnum. Nú velti ég því fyrir mér hvort þetta fólk sé yfir höfuð heimilislaust. Voru vaktaskipti? Hvað er málið..


<< Home