Stórmerkilegur atburður átti sér stað í kvöld. Ég Lilý Erla Adamsdóttir, sem var farin að titla mig sem njálg (vegna staðsetningu minnar ef miðað er við London) fór út á meðal fólks í kvöld. Ekki lengra en til Gerrards Cross sem er bara tíu mínútur í burtu og kostar ekki nema 3.50 pund báðar leiðir í lestinni. Þetta verða að teljast tímamót.
En ég sem sé hringdi í númer sem Anna fékk hjá einhverjum foreldrum bekkjarbróður Rökkva.. haha svo ótrúlega leim.. en alltí lagi þetta var númerið hjá Slóvneskri (segir maður það?) au pair stelpu sem er að passa fyrir þessa foreldra þessa bekkjarbróður. Hún var svona næs í símann og ég ákvað að hitta hana í Gerrards í kvöld. Vá hvað þetta er slæm saga.. hér kemur brandarinn. Ég sagði við Elfu í dag eftir að ég talaði við hana að hún væri ekkert sérstaklega sleip í enskunni, jafnvel hef ég orðað það þannig að hún talaði eins og Tom Hanks í The Terminal. En ég meina.. svo kem ég þarna á pöbbinn með henni og hvað haldiði?!HAhh jújú er ekki matseðill á barnum sem stendur á: A bite to eat? HAHA og ég hugsaði náttúrulega bara Eat to bite? Hahahaha eeeeeeeeeeehh. Já ég hló inní mér.. eins og hross.


<< Home