Ja detti mér nú allar dauðar.. í dag uppgötvaði ég það, þar sem ég sat á salerninu og skoðaði á mér naflann (gott hobbý) að ég væri með naflakusk! Hvað á það að þýða? Ég stóð í þeirri meiningu að þetta gæludýr settist eingöngu að í nöflum á köllum með vel bústna bjórvömb skrýdda hárum grónum nafla. Þetta var sem betur fer ekki orðið að ló.. ég veit ekki hvað hefði orðið um mig ef svo hefði verið. En ég er enn gapandi yfir þessu, veit ekki hvað skal til bragðs taka. Ætti ég að byrja að raka sportarann sem ekki er til staðar, mér vitanlega, ef hann skyldi vera þarna? Ég á klárlega eftir að vera með félagann undir smásjá framvegis.. þvi ekki vil ég líta niðrá herra holu í einn daginn og rekast þar á kuskbolta, LÓ!, sem væri búin að hreiðra þar um sig, nei takk! Er þetta bómullarbolnum mínum að kenna? ..ég veit það ekki. Spurning um að kaupa sér spandexboli hér eftir.


<< Home