Enn hefur ekki bólað á meira naflakuski og verða það að teljast mjög góðar fréttir. Ég kenni því um að ég var nýkomin úr "i'vegotthepower" gírnum og því sveitt, þetta var svita og bómul að kenna. Mynduðu saman einhverja wannabe ló. Nú hljóma ég eins og ég sé að afsaka mig en svo er ekki! Það munu berast fregnir af því samstundis ef holan fyllist af einhverjum dún,úr hverju svo sem hann þykist vera úr.
Í kvöld hins vegar var alveg gjörsamlega gengið fram af mér, hoppað uppá mig aftur, steppað, ekki lauslega heldur af fullum krafti og svo stunsað fram af mér í annað sinn. Þannig vildi til að ég fór og hitti tékknesku gellurnar sem ég kynntist hérna um daginn í gegnum þá slóvnesku sem ég kynntist á svo óvæntan og eftirminnilegan hátt! HAHA já.. nei. Við fórum á pöbbin White Hart þar sem international klúbburinn hérna í Beaconsfield hittist alltaf á á þriðjudagskvöldum. Þetta var svona kósý fílingur, fólk héðan og þaðan samankomið við borð. Allir að kynna sig og spjalla bara. Kósý mhm. Ég sit þarna við annan endann á borðinu og er að spjalla við fólkið mín megin. Nema hvað að einhver félagi frá Tékklandi sem situr hinumegin við borðið, á hinum endanum, starir á mig eins og sveskja. Svo augljóslega að það er óþægilegt, nánast óbærilegt þar sem sá hinn sami er í pólóbol sem er opin lengra en leyfilegt er, svo langt að bringuhárinn sem eru ekkert eitt og eitt einmanna á stangli heldur heill frumskógur af hárum samankomin í partý. Eftir að hafa setið þarna með augun á mér í dágóða stund kallar hann á mig:
hann: ,,Lilý!"
ég: ,,yes"
hann: ,,Lilý, that's a very beautifull flower isn't it?" (glottir stoltur af þessari ótrúlegu línu)
ég:(roðna ósjálfrátt niðrí rass) ,,well yes I suppose so"
..og gaurinn glotti eins og hann hefði verið að verpa eggi
svo sný ég mér undan og held áfram að tala við eðlilega fólkið.. eftir smá stund gargar hann aftur yfir borðið:
hann: ,,Lilý!"
ég:,,yes"
hann:,,have you been a good au pair?" (glottir eins og það sé annað egg að gæjast)
ég:,,I really hope so"
Hann:,,I will give you my babies!" (oooog eggið kom ásamt fylgju en með fæðingargalla!)
Eeertu eeekki að grínast?! Má þetta?


<< Home