Gauragangur á Hóli
Já það er gauragangur á hóli. Eða í skóglendisgötu 5 hér í landi engla. Í dag hefur verið brotin rúða vegna þess að einn meðlimur fjölskyldunnar fékk þá flugu í höfðið að prófa karate spark sem hann hafði séð í tellíinu. Gott þetta. Annar er tígrisdýr um þessar mundir og sá þriðji hellti gosi niðrí teppið. Það verður án efa skemmtilegt að fylgjast með þróun mála á þeim bletti næstu dagana. Klístrað? Myglað? Aldrei að vita..
Í gær kom restin af búslóðinni, að þessu sinni frá Íslandi. Þannig að mínimalisminn fékk að fjúka útum gluggan og allt var hér fullt af kössum. Nú er búið að dreyfa innihaldi þeirra vítt og breytt um húsið og ég er ekki frá því að það sé orðið svolítið heimilislegt hérna hjá okkur. Myndir og bækur prýða hvert herbergið og skapa persónulegt og hlýlegt andrúmsloft. Við erum meira að segja komin með sófaborð! Eldhússkáparnir eru líka orðnir sneisafullir af allskyns gleri og keramík og ég veit ekki hvað og hvað. Það þarf að sjálfsögðu að halda upp á svona atburði, þannig að í kvöld ætlum við að borða unaðs lambavöðva og drekka flauellis mjúkt rauðvín með. Ostarnir bíða svo þar til tekið verður í spil síðar um kvöldið. Þetta stefnir í gott, það er ekki hægt að segja annað.
Nýjustu fréttir eru þær að Anna og Elfar voru að bóka sér ferð í Karabískahafið í viku í maí og svo ég gangi ekki af göflunum og reyti hár mitt (líkurnar á því að það myndi gerast eru reyndar afar litlar) mun Bebba bjútí koma hingað og leggja mér lið við pössunina. Unaður á unað ofan.. ég get svo svarið það.
Næst á dagskrá hjá mér er að pakka niður öllu óþarfa dóti.. því allt sem mögulega kemst með mér heim um páskana skal sko fá að fljúga! Ég fékk allt dótið mitt sem var eftir í Frakklandi, á fimmtudaginn síðasta.. og OMG hvað það er mikið. Þurfti ég saumavélina? Þurfti ég allt efnið? Þurfti ég allt garnið? ..og hvað með þetta ósiðlega magn af fötum, þurfti ég það? Nei það er víst ábyggilegt að ég þurfti það ekki.
Una kemur til mín eftir 5 daga! Jeremías.. og daginn eftir að hún fer þá fæ ég að sjá Sigurrós aftur! U-NA-ÐUR! Takk.
Takk...


<< Home