Au pair blogg
Sjaldan hef ég verið jafn fegin að komast út úr búð og í dag. Ég fór með skarann í dótabúð og þar máttu þeir bræður velja sér dót fyrir tíu pund. Við skulum bara segja að það hafi verið snúið. En úti var sól og fuglasöngur og þar var gott að vera. Godness.. playmo getur verið erfitt viðureignar. Annars átti ég yndislegan dag með krökkunum, það var sungið, hlegið og dansað.. ég var væmin og táraðist af væntumþykju. Lil miss soft. Svo pældum við aðeins í þvi hvernig það væri að vera kúkur. Sennilega ekkert sældarlíf. Fastur inní bossa í einhvern tíma, svo er manni kreist út og steypt ofan í klósett þaðan sturtað oní sjó og þar fær maður að sigla. Rökkvi kom með svo með þessa línu: En það væri nú pínu fyndið ef maður myndi lenda í sjónum við ströndina, þá myndu allir sjá kúk. Lilý: Já svo væri einhver að synda. Rökkvi: HAhahahahahaHAHahahHAha! oj! Lilý hló alveg jafn mikið, reyndar meira að en með. En það er gott að kynnast fólki með svipaðan húmor ekki satt. Skiptir engu á hvaða aldri. Þess má líka geta að það heyrðist til þeirra inn í leikherbergi syngja Ég flækist í þitt prump, á meðan ég sef.. þú veist hvaða prump ég ber til þín... (Jónsi þykir gegggt töff og ógesslega svalur gæji) Ég elska þetta litla fólk.


<< Home