Já ætli það sé ekki kominn tími á að ég hripi eitthvað niður til að henda hérna inn.. margt hef ég gert síðan síðast og ekki ætla ég að tíunda hvern dag fyrir sig. Ég er búin að fara til Parísar í heimsókn til Unu og Heiðrúnar og Mússa og Alex.. það var ótrúlegt og unaðslegt eins það er alltaf þegar maður sækir gott fólk heim. Ég fór í Lególand með gengið mitt, það var fyrirtæki en stórkostleg skemmtun. Bebba kom og fór og eins og alltaf þegar hún heiðrar mann með nærveru sinni líður manni eins og heima heima. Trailertrash grúppan kom til London og við Bebba gistum með þeim á hosteli niðrí bæ. Það var snehelld..
Grúppan var reyndar í öðru herbergi en við tútturnar tvær og því með aðra herbergisfélaga. Gátum við þakkað fyrir það, ég og Bergen. Með þeim í herbergi dvöldu hinir dularfyllstu menn sem ég hef komist í kynni við. Annar stoppaði stutt og voru þau því afar fegin því sá Guðbrandur geymdi sög undir rúminu sínu.. guð má vita til hvaða verka hann var að spara hana. Jesús. Þægilegt að sofa fyrir ofan hann? En þegar hann kvaddi kom Jóhann frá Svíþjóð. Sá maður..
Eitt kvöldið sátum við inní herbergi 71 og spiluðum.. við stelpurnar 6.. Helgi lá reyndar og las (ekki það að það skipti máli í sögunni en já til hamingju með gott innskot). Félaginn (Jóhann) var nýkominn uppá herbergi og lá makindalegur uppí rúmi, hann hafði gert ítrekaða tilraun til þess að fá að spila með en því var eitt með "brosa segja jáááá flissa og líta undan" aðferðinni þar sem hann gaf kost á þeirri aðferð með því að nota undarleg orð. Spilið hófst án félagans og allir voru sáttir við sitt. Nema þær tvær sem sátu þannig að við þeim blasti maðurinn uppí rúmi. Þær máttu horfa uppá manninn nudda á sér höfuðleðrið og stynja með þvílíkum unaðssvip á andlitinu að halda mætti að íkorni hefði læðst í brók þess sænska. Það var meira en að segja það að verjast hlátri þegar hann hóf að lyfta upp fótunum í takt við nuddið. Ég veit ekki sko, hann hefur kannski lært þetta einhverstaðar í nuddskóla. Allavega þá brostum við og flissuðum örlítið af þessu hátterni. Þangað til það leið á kvöldið og við vorum hættar að spila og farnar að spjalla, maðurinn sem búinn var að liggja og stynja allt kvöldið reis úr rekkju og sveiflaði sér úr að ofan. (Maður um fertugt með hárið greitt aftur eins og heimilislæknir, gleraugu í kaki buxum og gráum bol.. kynæsandi? tjahh..) Við okkur blasti sjálflýsandi bak með mislitum fæðingablettum. Hakan datt ofan í gólf. Ef það var erfitt að hlægja ekki áður þá var ógerlegt að bæla hláturinn niður á þessu augnabliki. Tístið úr hægra horninu (Valdís) gerði það enn erfiðara. Maðurinn hlýtur að hafa heyrt hversu óþægilega vandræðalegar við vorum þar sem við ískruðum (óþroskaðar gæti einhver sagt en sá hinn sami var ekki á staðnum). En hann var greinilega að fíla þetta því hann gerði sér lítið fyrir og leysti beltið sitt. Við það þrumuðu kakibuxurnar niðrí gólf og viti menn. Á miðju gólfinu, hálfum metra frá okkur stóð félaginn á grárri speedo brók í sokkum. Maður hefði haldið að hann myndi vippa sér uppí rúm svo lítið bæri á en NEI. Honum tókst einhvernveginn að klifra upp í neðrikojuna svo fólkið í hinni álmunni tæki eftir því og allir í herberginu neyddust til að horfa á botninn á honum þar sem hann glenti hann framan í okkur með djásnin dinglandi þarna milli lappanna.. og á leiðinni, sem þá virtist Ó-TRÚ-LEGA löng, þurfti hann nauðsynlega að klóra sér heiftarlega á innanverðum lærunum, sem hann og gerði þegar hann stóð þarna boginn með rassinn útí loftið.
Núna þegar ég hugsa um þetta þá finnst mér þetta hafa gerst í slow motion, kannski af því að hann var ógeðslega lengi að koma sér uppí rúmið.. en kannski bara af því að þetta var svo öfga vandræðalegt og hláturinn kraumaði eins og leirhverirnir í mývó. Ótrúlegt augnablik sem mér fannst ég verða að deila!


<< Home