laugardagur, júní 10, 2006

Jæjajæja.. Nú er ég komin heim. Búin að vera heima í að verða viku, byrjuð að vinna og búin að hitta svo mikið af góðu fólki. Fyndnast þótti mér þegar ég hitti ömmu innbrotsþjóf í gær, þegar hún laumaðist inn framdyrameginn með glænýtt rúgbrauð til að setja á eldhúsborðið. Hélt það væri engin heima og brá allverulega þegar ég galaði upp yfir mig.

Það er gott að vera komin heim. Akureyri er góð, ég er búin að sakna hennar pínu. Kveðjustundin úti var þó háklassa drama móment þar sem tár hrundu og hvaðeina. Ég settist uppí leigubílinn og reyndi að brosa í gegnum tárin en þótti það erfitt. Leigubílstjórinn kunni sitt fag og bauð mér tissjú, það var gott og fremur þarft, þar sem maskarinn var í þann veginn að breyta mér goth. Það þarf nú varla að taka það fram hversu ótrúlega gott það var að hitta mömmu á hótelinu. Undarlegt sambland tilfinninga sem kraumaði á þessari stundu. Jeminn. Við mamma áttum svo þrjá frábæra daga inní London áður en ég skakklappaðist heim á leið.

Þegar við lentum á Keflavíkurflugvelli í einni salíbunu, guð minn góður ég hef aldrei upplifað aðra eins lendingu. Maðurinn steypti sér einfaldlega niður úr skýjunum og niður á flugbrautina, ég hélt að við myndum lenda á nefbroddi flugvélarinnar og á tímabili hélt ég að við myndum öll deyja. Sem við gerðum ekki. En ég var svekkt því ég minnist þess ekki að flugfreyjan hafi sagt: Góðir farþegar, velkomin heim. Það er það sem maður vill heyra þegar maður lendir á Íslandi. En já. Þegar maður mátti fara að hreyfa sig í flugvélinni ákvað ég að hringja í símann minn því ég fann hann hvergi. Þegar það hafði hringt þrisvar var svarað í hann. Það kom engum á óvart að ég gleymdi símanum mínum á Stansted airport, fólk nánast bjóst við því. Til hamingju.

Hér með ætla ég að ljúka þessari "svogerðiégþetta" frásögn og óska öllum góðrar helgar. Ég er í fríi. Vei!