Eikartréð
Mmm.. gott kvöld í kvöld. Góður dagur líka ef útí það er farið. Ég fór með Karin og skoðaði íbúðina aftur, við flytjum inn um helgina. Líst svo vel á þetta. Í kvöld er ég búin að vera hjá Brynju og við erum búnar að eiga góðar stundir. Kertaljós og jólalög, spjall og piparkökur.. dott í sófanum og jú grjónari í kvöldmat. Heimilislegt. Svo ætla ég að gista hjá henni í nótt. Ég er ekki frá því að það sé sama tilfinning sem fylgir því og þegar ég fékk að gista hjá ömmu í gamla daga.
Ég drakk annars og einmitt kaffi hjá Brynju um daginn þegar mamma var hérna. Mér þætti forvitnilegt að fá spádóm úr þeim bolla.. með þessu myndarlega eikartréi.. sterkar tengingar að vestan og austan.. svolítil að norðan og agnarlítil frá suð - vestri og svo korgurinn þarna skýr að ofan en eins og duft að neðan.. hvað þýðir þetta eiginlega?


<< Home