Jæja.. alltaf gott að byrja færslu á þessu ódauðlega orði. Nú er ég búin að sitja sveitt yfir bókum og blöðum, pdf-skjölum, powerpoint fyrirlestrum og word textum. Vægast sagt orðin þreytt á því. Á morgun er prófið. Í gærkvöldi var ég orðin svo snarvitlaus í hausnum af þessu öllu saman að ég átti við persónuleikaraskanir að stríða. Ég fékk eitthvað panikkast í sambandi við þetta árans próf. Sá ekki fram á að geta haldið höfði þegar ég gengi útúr því, ég jafnvel orðaði það þannig að ég myndi leggja leið mína rakleiðis í átt að rassgati mínu, hola mér þar inn og dveljast um stund. Ekki fallegt, nei. Svona var ég, ég jafnvel.. nei ég vil ekki einu sinni segja hvað hrundi af vörum mínum. Það er ekki líkt mér að blóta og það er heldur ekki líkt mér að fara á flug og sjá fyrir mér töff verkefni fyrir ungavísindamenn, fjarstýrða fjar-anallinn. Ehh. Ég fékk reyndar hjálp við þetta. En plönin voru þau að senda félagan út á bílaplan meðan ég sæti í prófinu og hefna sín á þeim sem skipulagði kúrsinn, ég hefði fullgilda fjarvistarsönnun þar sem ég hefði verið í prófi á sömu stundu og einhver heeeeraunaði yfir volvoinn. Já ég veit, ég skammast mín.
Eftir öll ósköpin hafði ég fengið útrás fyrir því að ég sjálf hefði ekki nógu góð tök á þessu gossi sem þetta námsefni er og róaðist aðeins niður. Ég ákvað það með sjálfri mér að bjóða velkomið nýtt viðhorf. Svo fer sem fer. Það verður haft í hávegum á morgun, kannski verð ég heppin en kannski ekki. Ef ekki þá kemur inn nýtt viðhorf, sem mun þó vonandi staldra stutt við. Aldrei er góður kúrs of oft tekinn. Jább. Svo fer sem fer, ég get ekki gert mikið meira í þessu núna og er aldeilis búin að gera mitt besta. Semja lög til að muna ákveðnar taugar og ég veit ekki hvað og hvað. Mútta verður allavega hérna þegar ég er búin og ég get þá hrunið í fangið á henni. Sé fram á kvolití á kvolití ofan um helgina. Hve ljúft?
Nú, ég fór inn á þessa síðu. Þar fékk ég út að lagið sem var á toppvinsældarlistanum í Bretlandi daginn sem ég kom í heiminn er ekkert annað en lagið: Crowd - You'll Never Walk Alone. Í 21 ár hef ég verið sem nifteind gagnvart ensku deildinni (sem og öðrum deildum), ekki svo mikið sem velt því fyrir mér hvaða liði væri vert að halda með. Mér hefur oft liðið eins og ómerkari manneskju fyrir vikið, fundist ég útundan og hallærisleg þegar það er spurt: með hvaða liði heldurðu í ensku? (af því ég er einmitt spurð að því á hverjum degi..) og ég hafði aldrei neitt svar. Fannst ég ekki hafa rétt á því að velja mér lið til að halda með því að ég hafði ekkert vit á þessu. En hvað! Nú kemur þetta aldeilis upp í hendurnar á mér. Hahh! Go Liverpool go! Yeah!! (Ég flassaði og hristi bingóið um leið og ég skrifaði þetta). En burt séð frá því þá er ég ánægð með þetta topplag á fæðingardeginum mínum og hvað það segir mér. Fallegt, ósköp fallegt. Hvað er ykkar vindældarfæðingarlag? (gott orð).
Nú er ég ekki bara orðin þreytt, heldur dauðþreytt og ætla að henda öllum mínum frumum í rúmið og sofna vært. Vona að þið hafið það gott, hvar svo sem þið eruð stödd í heiminum (hohahahahahahahahaha.. sagði Drakúla greifi og það bergmálaði í höllinni). Eða var það og sofiði rótt í alla nótt hvar svo sem þið eruð stödd í heiminum hohahahahahaha. Eða nei bíddu.. hvernig var þetta? Þetta var eitthvað óviðeigandi, eitthvað með að bjóða góða nótt á morgnanna. Gosh ég man það ekki.


<< Home