mánudagur, október 09, 2006

Google myndleit

Nú hef ég sérstaka unun af google myndleit. Þar kennir ýmissa grasa og oft þegar manni leiðist getur maður grafið upp ótrúlegustu hluti þar (af hverju er ég að segja frá þessu? (og það eins og eðlilegum hlut!)). Um daginn leiddist mér og lagði leið mína inn á google.com ..smellti á myndleit og skrifaði holy moly (nei ég man ekki af hverju..). Þá fékk ég meðal annars upp þessa mynd:



Já.. ég veit ekki.. af google myndleit fór ég svo inn á síðuna þaðan sem þessi mynd kom og fann þar link á ótrúlega síðu. Nýju uppáhaldssíðuna mína. Þar er samantekt af öllu ótrúlega draslinu sem er verið að selja á ebay, og ég get svarið það ef ég hef ekki fundið hina fullkomnu tösku, veski.. eða eins og maður segjir á dönskunni.. jeg har fundet den fedeste pung!

Best væri ef taskan væri föst á magabelti og pési pungur dinglaði fyrir miðju. En fremur verð ég að bæta við einni mynd, sú síðasta.. ef ég ætti þetta myndi ég áræðanlega segja ooo oo obbosí í hvert sinn sem ég legði frá mér pennan. Nei hver? Hver myndi kaupa svona?