þriðjudagur, september 26, 2006

Jæja.. átakið er byrjað. Í dag keypti ég mér súkkulaði-mintu te, bragðið blæs huganum back in time þegar það voru gestir í mat heima og það var boðið uppá klukkunammi með kaffinu. Te með after eight bragði, mmh.. tvennt uppáhalds sameinað í eitt! Unaður.

Helgin var litrík. Byrjaði á því að ég tók lestina til Skövde, eða nei.. byrjaði á því að ég beið eftir lestinni til Skövde.. Stokkhólms lestinni sem var á leið til Gautaborgar. Þar hafði elskulegur maður ofan af fyrir mér með söng og hlátri. Hann var skítugur og fullur með hor og derhúfu á hausunum. Á derhúfinni stóð Hero.

Lestarferðin gekk vel, Cosmo er góður ferðafélagi. Næstur í röðinni á eftir Ipodnum sem varð óvart eftir heima. Á sænsku.. alltaf að æfa mig.

Til Skövde kom ég heil og sæl og Linda stóð þar fersk á lestarstöðinni tilbúin að fara á Krydduna? (rétt?) í pítsu og öl. Góður kebab blær yfir þessari pítsu. Þar á þeirri stundu byrjaði brjósk ævintýrið mikla sem stóð yfir föstudag laugardag og sunnudag. Hvað sem ég dirfðist til að setja inn fyrir varir mínar og innihélt kjöt hafði að geyma óhræsis brjósk. Öh. Það var yndislegt að hitta fólk sem annað hvort stendur í sömu sporum og ég, eða hefur reynslu af þeim sporum. Það er bara alltaf gott að hitta Íslendinga í útlöndum. Við elduðum svo unaðsmálsverð á laugardagskvöldið og bökuðum meira að segja muffur í eftirrétt.. shake and bake baby! Kann ég móður minni kærar þakkir fyrir hjálpina við sósugerð, bæði súkkulaði og rjóma.. mútta klikkar seint. Þetta laugardagskvöld var ákeðin upplifun. Aldrei á ævinni hef ég áður farið í VIP partí. Þar sátum við á hvítum leðursófum með krosslagðar lappir og drukkum dýrt kampavín. Mér leið eins og lögfræðingi (elf). Alltaf gaman að prófa eitthvað nýtt.. jájá.

Á sunnudeginum átti ég svo lestarmiða til baka klukkan 13.22 fínn tími. Linda stillti klukku áður en við fórum að sofa þarna um nóttina og allt var í orden. Svo vaknaði ég af værum svefni og fannst eitthvað vera í ólagi. Spurði Lindu samstundis hvað klukkan væri. Hún leit á símann sinn og blótaði. Ég blótaði. Hún sagði mér að klukkan væri 13.55. Ég blótaði aftur. Hún blótaði aftur. Ég sagði æji wtf! (af því að ég er svo svöl), það ganga fleiri lestir í dag. Við steinrotuðumst aftur. Þegar við vöknuðum svo af værum svefni í annað skiptið og fórum á fætur leit ég á klukkuna mína, hún hvíslaði því að mér að hún væri 13.30. Hér lít ég hugsi upp í loftið og segji svo oh klukkan hefur stoppað í gær (þar sem hún er frá 1950 á hún það til þegar hún er ekki trekt reglulega), ég byrja að trekkja.. lít svo á símann minn til að stilla klukkuna eftir honum. Hann öskraði á mig að klukkan væri 13.32! Nú lít ég á Lindu og spyr hvað klukkan sé eiginlega á símanum hennar. Hún svarar fjögur. Ég fer að hlægja og átta mig á því að ég sé nýbúin að missa af lestinni. Einhvernveginn hefur Lindu s.s. tekist að flýta klukkunni á símanum sínum um tvo og hálfan tíma í staðinn fyrir að stilla vekjaraklukkuna. Öflugar.

Þegar heim var komið tók við lærdómur og lestur sem er jú raunar eitt og hið sama. Vúhú! Hópavinna Vúhú! Síðasta vikan af þessum kúrs eeeeevúhú! Næsti kúrs byrjar á mánudaginn og hann byggist á og í kringum Eyrað, heyrnina og jafnvægisskynið. Hann er á ensku. Það lætur mig brosa :) Annars þykir mér ég vera að standa mig vel í sænskunni. Hitti Hönnu í dag og talaði jafn mikla sænsku og ensku fiddífiddí bara. Svo skilaði ég fyrsta verkefninu mínu á sænsku í dag. Hef fram að þessu alltaf skrifað á ensku. 1-0 fyrir mér.

Nú er það svefn.. súkkulaði te-ið er búið og maginn mjálmar blíðlega í þakklætisskyni. Ég elska te.