fimmtudagur, september 14, 2006

Í dag hét Sunneva Fimmteva, á morgun heitir hún Fösteva. Nú ætla ég að vona að hún festi sig ekki í einhverju á morgun! Hohoho!

Fimmtudagur var það heillin. Annasöm vika í skólanum, vægast sagt. Mikið um lestur og íþyngjandi hópverkefni. Skólinn gengur ágætlega, það er ekki það. En það er skollanum skelfilegra að gera hópverkefni. Mér líður eins og ég sé nifteind. Hlutlaust á hlutleysi ofan. Ég hef vægast sagt skoðun á því sem við erum að gera og væri mikið til í að leggja orð í belg oft og tíðum. En það er hægara sagt en gert að segja eitthvað. Það er s.s. hægara sagt en sagt eða hvað? Oh allavega, manni líður nett eins og maður sé svona 65% einstaklingur í hópverkefnum. Maður er þessi þrolli sem talar ekki sænsku. Haha. Ahh nei ekki fyndið. Af þessum ástæðum þarf maður til að mynda að sitja hjá og horfa á grúppuna þrollast við að gera glærushow í Word. Maður spyr sig hvort það hafi aldrei hvarflað að sænskum að trycka på litla knappinn í Microsoft Office sem á stendur Power Point. Þegar þetta átti sér stað sat ég um stund og starði á skjáinn, blikkaði augunum og hrissti hausinn rösklega. Jú mér skjátlaðist ei, þær ætluðu að skófla þessu upp með word að vopni. Ég gat ekki á mér setið og gubbaði útúr mér að það væri þarna í tölvunni forrit sem væri sérstaklega ætlað í þennan bissness. Ég fékk mínu framgengt eftir að hafa ítrekað þetta tvisvar í viðbót og sýnt þeim hvar Ofurkraftspunkturinn hélt sig. Oh svo erfitt að taka þátt í svona skríplingaleik. Á morgun þarf ég svo að míga í mig. Ég á að flytja með þeim fyrirlestur hóhóhó og liggaliggaló ég datt um kónguló! Á sænsku. ( | ) -> Rass.

Hinsvegar var ég að gera dulítið gleðilegt. Ég hlóð inn massífu magni af myndum :) Þær má finna á myndasíðunni minni. Ég setti inn myndir frá ættarmótinu frá því í sumar,
allt mögulegt frá því í sumar, smá frá því í Englandi og svo Svíþjóðar myndir

Nú ætla ég að fara að steinsofa í hausinn á mér og reyna eftir fremsta megni að þylja fyrirlesturinn uppúr svefni á sænsku. Pottþétt, örugglega pottþétt.