miðvikudagur, júlí 26, 2006

Mæh hvað það var gaman að líta hingað inn og sjá 5 ný komment á einu augabragði.. boð í saltfisk og annað gómsætt gúmmelaði gladdi mig sérlega. Sé fram á að það verði gott til að halda heimþránni í skefjum. Harboe gleður líka litla verkamannahjartað mitt, kósý með einn ískaldann uppí sófa og jafnvel brennt popp með! Valdís.. Una.. er ekki bara bæði best? Sólveig.. við tökum ensomhetten á þetta einn sælan sumardag.. heldurðu að við getum ekki fengið Münzterland í smá trip? Hversu ótrúlegt yrði það?!

Það að ég hafi verið göbbuð til að taka þátt í einhverju vinnustaðarátaki, þykir mér ótrúlegt. Ég bara varð að vera með þarna á þessum tímapunkti sem allir þjónarnir voru uppá háa af æsingi yfir því að verða spikk og span, fit og flottar, morgunhressar og snargeðveikar. Hvernig mér tókst að sannfæra sjálfa mig um að ég gæti, eins og ekkert væri eðlilegra, vaknað klukkan 6 að morgni til , þrisvar í viku, ætt uppá Bjarg með það markmið að storka líkama mínum í einhverjum bekk sem gallar sig mr. gravity workout maniac (inthehouseofpain!), veit ég hvorki né skil! Þetta á náttúrulega að vera með lögum bannað! Nú hef ég, ekki einu sinni, komið á réttum tíma í þessa tíma. Ég hjóla eða keyri í svefni þarna uppeftir.. og legg þar með líf mitt í hættu, fyrir þessa vitleysu! Skakklappast inn um dyrnar og heyri einhverstaðar í fjarska: ,,ooog koma svo stelpur átta.. eftir.. og sjö, sex.. koma.. fimm og niður!". Hlunka mér á bekkinn og á mig kemur gretta. Já hún er svo þarna á andlitinu á mér allan tímann, í 45 mínútur, nei 40 því ég mætti 5 mínútum of seint. Nú borgaði ég góðan skilding fyrir þetta og er búin að vera veik í viku og missa af þremur tímum.. leyfi ég mér að segja (andskotinn) við því.. þó í hljóði. Meira bölvaða ehmpbrrrrr!

Ég elska að hreyfa mig, en klukkan 6 á morgnanna er aaaaðeins of gróft fyrir mig og minn kropp enn sem komið er. Kannski venst maður þessu.. aldrei að vita.

Við þessari pest minni fékk ég sýklalyf sem á stendur: varist sólarljós. Það flaug mér milli eyrna þegar ég var að skokka heim úr ljósum áðan. Hibb hibb, til hamingju! Ég er samt enn á lífi.. en kannski hefur þetta orsakað sárasótt sem mun dvelja í líkama mínum í 3 mánuði áður en hún kemur í ljós og ég dey. Ég ætti kannski að fara á doktor.net og athuga málið.

Anna, Elfar and my little loved ones koma til Íslands í kvöld. Vona svo mikið að ég geti hitt þau eitthvað meðan þau verða hérna. Ef einhver er að fara suður 9. ágúst þá langar mig að koma með :)

Strauja?

Og já.. það stefnir allt í að ég fari út eftir tæpar 3 vikur.. gosh!