Ég varð 21 í gær. Vildi að ég gæti sagt að mér hafi þótt það merkilegur áfangi en það get ég ekki. Það bættist OG við aldurinn og það helltist yfir mig sú tilfinning að ég væri að verða gömul. Öldruð. 20 OG eitthvað.. nú verður alltaf þetta og með. Skítt veri með það, það var samt sól úti og ég batt bleikt ullargarn í hárið á mér í tilefni dagsins. Ég fékk ógrynnin öll af yndislegum afmælisgjöfum frá vinum og vandamönnum. Allar afar kvenlegar og fallegar sem á alltaf vel við á þessum degi. Kann ég öllum kærar þakkir fyrir fallegu hugsanirnar á bak við allt saman, sem og alle de gode ting. Takk :* Eins og alltaf með góðar gjafir langar manni að nota allt lige med det samme (tvær dönskuslettur hér á stuttum tíma, eingöngu gert svo Sólveig skilji hvað um ræðir) Í gær þurrkaði ég mér í marimekkoservíetturnar og þefaði af blómunum.. sem var reyndar óhjákvæmilegt því ilmurinn fyllti húsið. Í morgun fór í sturtu og þurrkaði mér með handklæðinu frá mömmu og pabba.. kveikti á kertinu frá AníRosie smellti mér í genbrugsbolinn frá Sólveigu og töff BarbíKen design peysuna frá henni líka, úðaði á mig ilmvatni frá elf&beg. Straujárnið frá mömmu ætla ég að prófa hér rétt á eftir og hver veit nema ég eldi uppúr uppskrifablaðinu frá Heidi á morgun (reyndar er ég að vinna þannig að nei.. en kannski á föstudaginn). Yfir píkublóminu sem Una Valdís og Sólveig gáfu mér og Brynja bjó til, skeggræddum við vinkonurnar blöðrubólgur, magaólgur, stigaganga fyrir kynlífssvanga, fæðingar, blæðingar.. og fleira vel viðeigandi. Frábær dagur. Svo veit ég að ég á afmælisgjöf í skottinu hjá Arnari. Takk Ísak og Ari fyrir 10 kílóa blágrýtið sem ég bíð enn eftir að fá.
P.S. Mér finnst það ætti að vera hægt að fá límmiða á bílinn sinn þar sem gefið er til kynna að maður sé nýkominn frá Bretlandi. Hægri.. vinstri.. þetta er ruglandi.


<< Home