Kurtis Pham, Derrick Harmon, Damien Baker, Randy Lindsay, Levi Powers, Charlene Cassidy,Herschel Ladd, Sonya Drake, Merle Walters, Forest Ferris, Paula Carpender, Phyllis Butler, Essie Petersen, og Vince Atkins. Ég veit ekki hvað ég hef gert til að verðskulda ykkar endalausu athygli. Takk fyrir póstinn. Margsinnis.
Ég elska túrista.. túrhesta. Túristum frá Bandaríkjunum finnst ekkert mál að kaupa sér gistingu á Selfossi fyrir allan tímann sem þeir ætla að eyða á Íslandi og skreppa svo bara um landið þvert og endilangt í dagsferðir. Ég kvaddi tvo slíka á Bautanum, klukkan hálf níu í kvöld sem gáfu sér tíma í rauðsprettu og hval áður en þau héldu suður eftir aftur. Eljan í þessu liði.
Ég talaði við Snæfríði, Ugga og Rökkva í dag. Ég sakna þeirra svo óendanlega. Mig langar útí garð að hoppa á trampólíninu og mig langar í hver er maðurinn.. og mig langar að vera svona dýragarðskona sem á tvo apadrengi og mig langar í vink vink í pottinn og mig langar að baka súkkulaðiköku og sulla útum allt og mig langar mig langar og langar svo mikið að knúsa þau öll í klessu og deyja úr væmni að eilífu amen.


<< Home